Í úrslitaleik Evrópubikarsins um síðustu helgi þegar ungverska liðið Tatabánya og makedónska liðið GRK Ohrid mættust var alvarlegt atviki í miðjum leik þegar franska skyttan Baptiste Damatrin varð fyrir kynþáttafordómum úr stúkunni. Tatabánya heimsótti Ohrid í síðari leik úrslitaeinvígisins eftir að hafa tapað fyrri leiknum 29-28. Á meðan heimaliðið tryggði sér sigur í einvíginu beindist athyglin að atviki sem átti sér stað í síðari hálfleik. Í viðtali eftir leik sagði Baptiste Damatrin að í fyrstu hafi honum verið sýnd langatöng af stuðningsmanni Ohrid en síðar hafi sami stuðningsmaður byrjað að gefa frá apahljóð og benda á sig. ,,Þá var mælirinn fullur,“ sagði Damatrin. Samkvæmt Damatrin var ekki látið þar við sitja, heldur var einnig hrækt í átt að honum og liðsfélögum hans. „Flestir liðsfélagar mínir voru í áfalli og vissu ekki hvernig þeir áttu að bregðast við. Þetta var mjög furðuleg staða.“ Varð fyrir kynþáttarfordómum í úrslitaleik Evrópubikarsins Nú hefur EHF, evrópska handknattleikssambandið sent frá sér yfirlýsingu um málið. Þar segir sambandið að málið sé komið á borð til sín. EHF segist leggja áherslu á að kynþáttafordómar eigi engan stað í evrópskum handknattleik. Yfirlýsinguna má sjá hér að neðan: Yfirlýsing vegna leiksins GRK Ohrid gegn MOL Tatabánya KC Evrópska handknattleikssambandið (EHF) er meðvitað um atvik sem átti sér stað í úrslitaleik karla í EHF European Cup á sunnudag, milli GRK Ohrid og MOL Tatabánya KC, þar sem meint kynþáttaníð úr stúkunni var beint að leikmanni Tatabánya, Baptiste Damatrin. EHF leggur áherslu á að kynþáttafordómar eigi engan stað í evrópskum handknattleik og sem samtök fordæmum við hvers kyns kynþáttafordóma, mismunun og umburðarleysi. Slík hegðun gagnvart leikmönnum, dómurum, starfsmönnum eða áhorfendum verður ekki liðin. Í framhaldinu hefur Evrópska handknattleikssambandið ákveðið að hefja rannsókn á ásökununum til að komast að því hvort hefja skuli formlegt málsmeðferðarferli.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.