Aron Pálmarsson tilkynnti það undir lok síðasta tímabil að hann myndi leggja skóna á hilluna eftir tímabilið. Aron bættist þar í hóp fleiri leikmanna sem lögðu skóna á hilluna í sumar og sumir voru búnir að leggja skóna á hilluna fyrr á þessu ári. Instagram síðan Handballnews24 ákvað að gera úrvalslið leikmanna sem lögðu skóna á hilluna á þessu ári og hér að neðan má sjá útkomuna. Þar er Aron Pálmarsson meðal leikmanna en fjórir Þjóðverjar eru í liðinu þeir, Johannes Bitter, Tobias Reichmann, Paul Drux og Patrick Wiencek. Auk þeirra er rússneski vinstri hornamaðurinn, Timur Dibirov og örvhenta skyttan frá Slóveníu, Jure Dolenec.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.