Arnór Atla fær Benna Óskars til sín
TTH Holstebro

Leikstjórnandinn, Benedikt Gunnar Óskarsson hefur gengið í raðir TTH Holstebro í dönsku úrvalsdeildinni. Benedikt Gunnar gerir eins árs samning við Holstebro en Arnór Atlason aðstoðarlandsliðsþjálfari Íslands er þjálfari liðsins.

Benni gengur í raðir félagsins eftir tveggja ára dvöl hjá norska félaginu Kolstad en hann varð norskur meistari á dögunum eftir sigur á Drammen í úrslitaeinvíginu. Í úrslitakeppninni skoraði hann 40 mörk og var með 74,1% skotnýtingu og gaf þar að auki 15 stoðsendingar.

Handkastið greindi frá því að Benedikt Gunnar væri í viðræðum við danska félagið.

Fyrir hjá liðinu er hægri skyttan, Jóhannes Berg Andrason sem var að ljúka sínu fyrsta tímabili með félaginu en Benedikt Gunnar og Jóhannes Berg voru liðsfélagar í yngri landsliðum Íslands á sínum tíma.

TTH Holstebro endaði í 4.sæti dönsku úrvalsdeildarinnar en komst ekki í undanúrslit en liðið endaði í 3.sæti í sínum riðli í 8-liða úrslitum dönsku deildarinnar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top