Evrópska handboltasambandið (EHF) tilkynnti í dag lið tímabilsins 2025/26 hjá körlunum. Lið ársins var valið með eftir kosningu stuðningsmanna, leikmanna, þjálfara og fjölmiðla en hver hópur hafði 25 prósenta vægi í kosningunni. Í liðinu eru fjórir leikmenn frá Evrópumeisturum Barcelona, þrír frá silfurliðinu Füchse Berlin og einn frá SC Magdeburg. Fjórir danskir landsliðsmenn eru í liðinu, einn Spánverji, Slóveni, Frakki og Þjóðverji. Hér að neðan má sjá lið tímabilsins í Evrópu: Markvörður: Emil Nielsen (Danmörk / Barcelona) Vinstra horn: Tim Freihöfer (Þýskaland / Füchse Berlin) Vinstri skytta: Lasse Andersson (Danmörk / Füchse Berlin) Miðjumaður: Domen Makuc (Slóvenía / Barcelona) Línumaður: Magnus Saugstrup (Danmörk / SC Magdeburg) Hægri skytta: Mathias Gidsel (Danmörk / Füchse Berlin) Hægra horn: Aleix Gómez (Spánn / Barcelona) Besti varnarmaður: Ludovic Fabregas (Frakkland / Barcelona) Á morgun verður það síðan tilkynnt hver af þessum átta leikmönnum verður valinn verðmætasti leikmaður tímabilsins (MVP) og þá mun EHF einnig tilkynna besta unga leikmann tímabilsins en þetta fer allt fram á sama tíma og dregið verður í riðlakeppni Meistaradeildarinnar á morgun.Lið tímabilsins 2025/26

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.