Fimm félög sem ættu að sækja Birki Ben
Sævar Jónasson

Eftir eitt tímabil í Hafnarfirði með FH er ljóst að Birkir Benediktsson leikur ekki áfram með félaginu. Birkir skrifaði undir eins árs samning við FH síðasta sumar eftir eins árs dvöl hjá japanska félaginu Wakunaga.

Áður en hann hélt til Japans hafði Birkir leikið allan sinn feril með uppeldisfélagi sínu Aftureldingu þar sem hann var einn af lykilmönnum liðsins um árabil. Nú er reynslumikil örvhent skytta á lausu á markaðnum og gæti reynst mörgum liðum verðmæt viðbót fyrir komandi tímabil.

Handkastið greindi frá því í gær að framhaldið hjá Birki væri óljóst eftir að samningur hans við FH rann út.

Framhaldið óljóst hjá Birki Ben

Handkastið hefur tekið saman fimm félög í Olís-deild karla sem ættu að skoða það alvarlega að fá Birki Benediktsson til sín.

HK

HK missti Ágúst Guðmundsson til FH eftir síðasta tímabil og hefur enn ekki fyllt það skarð að fullu. Birkir myndi færa Kópavogsliðinu mikla reynslu, leiðtogahæfileika og gæði á báðum endum vallarins.

HK hefur misst mikið af mörkum frá síðustu leiktíð og liðið vantar sárlega reynslumikla örvhenta skyttu sem getur tekið ábyrgð í sóknarleiknum.

Afturelding

Mosfellingar virðast vera augljósasti kosturinn á blaði. Hallur Arason hefur yfirgefið félagið og Árni Bragi Eyjólfsson er samningslaus.

Birkir er uppalinn hjá Aftureldingu og þekkir umhverfið betur en flestir. Það kæmi því ekki á óvart ef Mosfellingar myndu reyna að fá einn af sínum mönnum heim á ný.

Selfoss

Það er orðið langt síðan Selfyssingar sóttu sér íslenskan leikmann úr efstu deild af höfuðborgarsvæðinu, en Birkir gæti verið afar áhugaverður kostur.

Hann myndi styrkja liðið bæði í vörn og sókn, bæta við reynslu og breidd og gæti orðið mikilvægur hlekkur í liði sem ætlar sér að halda áfram uppbyggingu sinni í deildinni.

Víkingur

Nýliðarnir hafa þegar verið orðaðir við Birki Benediktsson eftir að þeir tryggðu sér sæti í Olís-deildinni.

Víkingar hafa verið duglegir á leikmannamarkaðnum og sótt efnilega leikmenn úr Grill 66-deildinni. Reynslan úr efstu deild er hins vegar eitthvað sem ekki verður keypt á hverju horni og þar gæti Birkir skipt sköpum.

Ásgeir Snær Vignisson hefur verið óheppinn með meiðsli á sínum ferli og því gæti Birkir verið kjörinn kostur til að styrkja hægri skyttustöðuna hjá nýliðunum.

KA

Kannski er þetta langsóttasti kosturinn á listanum, en ef Birkir var tilbúinn að flytja til Japans ætti Akureyri ekki að vera útilokuð.

KA er aðeins með tvo örvhenta leikmenn í sínum röðum eftir að Einar Rafn Eiðsson flutti suður og samdi við FH. Þá glímdu bæði Morten Boe Linder og Giorgi Tskhovrebadze við meiðsli undir lok síðasta tímabils.

Norðanmenn gætu því haft ríka þörf fyrir reyndan örvhentan leikmann og þar passar prófíll Birkis afar vel inn.

Hvert liggur leiðin?

Birkir Benediktsson hefur sýnt í gegnum feril sinn að hann getur verið lykilleikmaður í íslenskum handbolta þegar hann er heill heilsu.

Spurningin er einfaldlega hvort eitthvert þessara félaga grípi tækifærið og geri tilraun til að fá Birki Ben í sínar raðir fyrir komandi tímabil.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top