Handkastið heldur áfram að hita upp fyrir Olís-deild karla tímabilið 2026/2027 og hefur fengið einn af sérfræðingum sínum, Einar Inga Hrafnsson til að sjóða saman í ótímabæra spá. Þetta verður önnur ótímabæra spáin fyrir næsta tímabil en Handkastið birti fyrstu ótímabæra spá sína um miðjan maí. Gefum Einari Inga Hrafnssyni orðið: Júlí er mættur á svæðið og ekki seinna vænna að henda í eina ótímabæra spá. Við erum að koma útúr tímabili þar sem karakter og reynsla Vals sigraði frábært lið FH í oddaleik, í troðfullri höll og með minnsta mun. Valsmenn Íslandsmeistarar og úrslitakeppni að baki þar sem stjörnur á borð við Gunnar Róbertsson, Ómar Darra Sigurgeirsson, Frey Aronsson og Ingvar Dag Gunnarsson stimpluðu sig inn, fengu lykilhlutverk og stigu upp að lokum fyrir sitt lið. Deildin virðist alltaf vera að yngjast, ungir strákar að láta til sín taka í nær öllum liðum og félögin farin að byggja leikmannahópana sína í kringum þessa ungu drengi. Þetta er eitthvað sem gerir Olís deildina skemmtilegri og eftirsótta að fylgjast með. En á sama tíma breytast áherslur liðanna, styrktarþjálfun ungra leikmanna er orðinn lykill að árangri og má sem dæmi nefna lið FH sem bar af í styrk og líkamlega þættinum á síðasta tímabili. Tímabilið 2026-2027 byrjar á vorin, þegar tímabilið er búið og pre pre season hefst, þá eru menn að styrkja sig og byggja sig upp fyrir áttök vetrarins. Í dag eru öll lið Olís-deildarinnar komin í sumarfrí, hinsvegar er þetta mikilvægasti tíminn. Það er oft sagt að það skiptir ekki máli hvað þú gerir á milli jóla og nýars, heldur hvað þú gerir á milli nýars og jóla. Þetta á ekki við hér. „fríið“ á sumrin er það sem skilur á milli. Ekki eyða fyrstu fjórum vikum ágúst mánaðar í að koma þér í stand, komdu í standi útúr sumarfríi. En þá er komið að spánni, eitthvað hefur verið um félagsskipti innanlands, ný erlend andlit mætt inná íslenska handboltavöllinn og nokkrar þjálfara breytingar átt sér stað. Spennandi tímabil framundan og liðin komin mislangt með að móta leikmannahópinn sinn. Fyrsta ótímabæra spá mín setur Hauka í efsta sætið, Þór og Víking utan úrslitakeppni og Selfoss í neðsta sætið. Fyrsta ótímabæra spá Einars Inga:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.