Slóvenski landsliðsmarkvörðurinn Miljan Vujović hefur gengið til liðs við pólska stórliðið Wisla Plock fyrir komandi keppnistímabil en hann gengur í raðir félagsins frá slóvenska félaginu Slovan. Vujović verður lánaður til Wisla Plock frá Slovan en hann hefur leikið með TVB Stuttgart í þýsku úrvalsdeildinni síðustu ár og stefndi á að leika með Slovan á næstu leiktíð. Eftir að félagið mistókst að vinna sér inn sæti í Meistaradeildinni var félagið tilbúið að lána markvörðinn til Póllands í eitt ár. Vujović er ætlað að fylla skarð norska landsliðsmarkvarðarins Torbjørns Bergerud, sem samkvæmt erlendum miðlum er óvænt á leið til danska félagsins Fredericia. Með komu Vujović verður hann 16. markvörðurinn sem ver mark Wisla Plock á síðustu tíu árum. Á þeim lista eru meðal annars íslenski landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson, spænski landsliðsmarkvörðurinn Rodrigo Corrales og Króatinn Mirko Alilović. Wisla Plock hefur á undanförnum árum verið eitt sterkasta lið Póllands og fastagestur í Evrópukeppnum. Hér má sjá alla sextán markverði Wisla Plock síðustu tíu ár:
Admir Ahmetasević
Mirko Alilović
Torbjoern Bergerud
Ignacio Biosca
Adam Borbely
Wojciech Borucki
Rodrigo Corrales
Viktor Hallgrimsson
Abdelrahman Homayed
Marcel Jastrzębski
Adam Morawski
Kristian Pilipović
Ivan Stevanović
Marcin Wichary
Krystian Witkowski

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.