Benedikt Gunnar Óskarsson sem gekk á dögunum til liðs við TTH Holstebro í dönsku úrvalsdeildinni frá Kolstad lenti í heldur óhugnalegum meiðslum á dögunum. Benedikt Gunnar var staddur í Grindavík í golfi með Gauta Gunnarssyni, leikmanni Stjörnunnar og Andra Má Rúnarssyni leikmanni Erlangen. Þeir eru komnir á 17 holu þar sem Benedikt er að vippa inn á flötina og hann fær golfkúlu í hausinn frá öðrum spilara á vellinum, Við höggið, sem kemur aftan á vinstri hlið höfuðsins, kemur sprunga í höfuðkúpuna og blæðir inn á heila sem verður til þess að Benedikt missir allan mátt í hægri hendinni og þurfti að dvelja 4 nætur á sjúkrahúsi eftir slysið. Benedikt viðurkennir í samtali við Handkastið að hann hafi verið helvítið þungt andlega í byrjun og tekið á þegar hann lá einn á sjúkrahúsi með hugsunum sínum. ,,Læknarnir gátu í raun og veru ekkert sagt hvort mátturinn í hendina kæmi til baka en núna síðustu daga eru þeir mjög ánægðir með árangurinn og hvernig bataferlið er að ganga." Benedikt vissi strax og kúlan fór í höfuðið að þetta væri alvarlegt þar sem hann lét meðspilara sína strax vita að allur máttur í hendinni væri farin. ,,Það fyrsta sem ég segi við strákana er: Hendin er farin. Höndin dofnaði bara strax en síðan kom mátturinn hægt til baka," sagði Benedikt þegar hann rifjar upp atvikið. ,,Það fyrsta sem læknarnir sögðu við mig var að þeir gátu ekkert lofað því að mátturinn myndi koma til baka og það var mjög erfitt að heyra það. En síðustu daga hafa læknarnir verið bjartsýnni og bjartsýnni sem er mjög jákvætt." Endurhæfing byrjaði svo í síðustu viku á Grensás þar sem hann fer þrisvar í viku og fær hjálp við það að vinna til baka mátt í hendina og segir Benedikt að það sé mikill dagamunur á sér. ,,Ég byrjaði í síðustu viku í endurhæfingu fyrir heilann með það að markmiði að reyna virkja heilann og hendina saman. Ég er kominn með mátt í fingurna og þetta er allt á réttri leið þó ég sé er ekkert að fara að snúa boltann strax. Ég er byrjaður að hjóla og reyna aðeins meira á líkamann." Benedikt ætti að vera farinn að æfa með TTH Holsebro en þjálfari TTH Holstebro er Íslendingurinn, Arnór Atlason. Liðið byrjaði að æfa í dag og hefur hann verið í góðum samskiptum við félagið og hafa verið virkilega hjálplegir í öllu ferlinu. ,,Þeir sögðu mér að vera heima þangað til ég væri orðinn betri og myndi treysta mér út þar sem ég væri í betri höndum á Grensás en úti hjá þeim." Benedikt viðurkennir að síðustu dagar hafa reynst honum virkilega erfiðir en nú sé bjartara yfir eftir að hann hafi náð að hreyfa fingurna í fyrsta skipti eftir atvikið á dögunum. ,,Þetta tók virkilega mikið á fyrstu dagana og vikuna eftir atvikið og maður var þungur andlega."

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.