Dregið verður í riðlakeppni Evrópudeildar karla í dag klukkan 09:00 að íslenskum tíma. Þar kemur í ljós hvaða liðum Íslandsmeistarar Vals og FH mæta í riðlakeppni Evrópudeildarinnar. Alls taka 32 lið þátt í riðlakeppninni en liðunum verður skipt í átta fjögurra liða riðla og fara tvö efstu lið hvers riðils áfram í umspil. Valur verður í öðrum styrkleikaflokki þegar dregið verður og FH í þeim þriðja. Fjölmörg Íslendingalið eru í keppninni að þessu sinni. Riðlakeppnin fer fram frá 29. september til 2. desember. Þá bætast liðin sem enda í þriðja og fjórða sæti í riðlum Meistaradeildarinnar við keppnina og mynda saman 28 liða umspil sem leikið verður í febrúar og mars 2027. Sigurvegarar umspilsins komast í 16-liða úrslit ásamt þeim liðum sem enda í fimmta sæti í seinni riðlum Meistaradeildarinnar. Þaðan tekur við útsláttarkeppni með 8-liða úrslitum í apríl áður en lokahelgin, EHF Finals, fer fram 22. og 23. maí á næsta ári þar sem Evrópumeistarar verða krýndir. Meðal sterkustu liða í riðlakeppninni eru þýsku stórliðin SG Flensburg-Handewitt, VfL Gummersbach og Bergischer HC, portúgalska liðið Benfica, sænska meistaraliðið IK Sävehof, norska stórveldið Elverum og danska liðið TTH Holstebro. Liðin 32 sem taka þátt í riðlakeppninni eru:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.