Dregið verður í riðlakeppni Evrópudeildar karla í dag klukkan 09:00 að íslenskum tíma. Þar kemur í ljós hvaða liðum Íslandsmeistarar Vals og FH mæta í riðlakeppni Evrópudeildarinnar. Alls taka 32 lið þátt í riðlakeppninni en liðunum verður skipt í átta fjögurra liða riðla og fara tvö efstu lið hvers riðils áfram í umspil. Valur verður í öðrum styrkleikaflokki þegar dregið verður og FH í þeim þriðja. Fjölmörg Íslendingalið eru í keppninni að þessu sinni. Meira er hægt að lesa um dráttinn hér að neðan: DREGIÐ Í RIÐLAKEPPNI EVRÓPUDEILDARINNAR – VALUR OG FH Í POTTUNUM

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.