Franski leikstjórnandinn Kentin Mahé segir síðustu vikur hafa verið afar stormasamar eftir að samstarfi hans og VfL Gummersbach lauk skyndilega í byrjun júlí. Mahé var látinn fara frá félaginu með tafarlausum hætti og aðeins tíu dögum síðar var tilkynnt að hann hefði samið við Rhein-Neckar Löwen fyrir tímabilið 2026/27. Á blaðamannafundi Rhein-Neckar Löwen greindi hinn 35 ára gamli Mahé frá því að hann hefði meira að segja skráð sig atvinnulausan eftir að samkomulag náðist um starfslok hans hjá Gummersbach. „Margt hefur gerst síðan ég gekk til liðs við Löwen. Ég náði samkomulagi við fyrri vinnuveitanda minn 1. júlí og skráði mig síðan atvinnulausan, eins og reglurnar gera ráð fyrir,“ sagði Mahé. Mahé sagðist fljótlega hafa fengið símtal frá Maik Machulla, þjálfara Rhein-Neckar Löwen, sem hafi breytt öllu. „Það var mér strax ljóst að ég vildi ekki deyja hægum dauða og smám saman hverfa úr sviðsljósinu.“ Hann segir símtalið hafa verið gríðarlegan létti. „Ég tel mig enn vera nógu góðan til að hjálpa liði. Þegar Maik hringdi í mig – eftir að hafa loksins fengið rétt símanúmer frá Jacob Heinl – varð ég ótrúlega ánægður. Það skipti mig miklu máli að einhver trúði enn á mig og taldi að ég gæti hjálpað liði og jafn sterku liði og Rhein-Neckar Löwen.“ Með félagaskiptunum fær Mahé tækifæri til að halda áfram ferli sínum í þýsku Bundesligunni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.