Viggó á lista yfir tíu stærstu félagaskipti næsta sumars
Flensburg

Handboltasíðan RT Handball á Instagram hefur birt sitt mat á tíu stærstu félagaskiptunum sem taka gildi fyrir tímabilið 2027/28. Á listanum er meðal annars, landsliðsmaðurinn Viggó Kristjánsson.

Stærstu félagaskiptin að mati RTHandball eru félagaskipti portúgölsku bræðranna Francisco (Kiko) Costa og Martim Costa, sem yfirgefa Sporting og ganga í raðir þýska stórliðsins Flensburg-Handewitt sumarið 2027. Félagaskiptin voru gerð opinber á dögunum.

Viggó Kristjánsson, sem yfirgefur HC Erlangen og gengur til liðs við Flensburg-Handewitt, er í 8. sæti listans, en Viktor Gísli Hallgrímsson, sem flytur sig frá Industria Kielce til Flensburgar, er í 9. sæti. 

Athygli vekur að Flensburg-Handewitt kemur hvað mest við sögu á listanum, bæði með stórar komur og brottfarir, en félagið fær til sín Costa-bræðurna og Viggó Kristjánsson á sama tíma og Simon Pytlick og Niclas Kirkeløkke yfirgefa félagið

Tíu stærstu félagaskiptin samkvæmt RTH Handball eru:

  1. Francisco Costa – Sporting → Flensburg-Handewitt
  2. Martim Costa – Sporting → Flensburg-Handewitt
  3. Renars Uščins – Hannover → Paris Saint-Germain
  4. Dika Mem – Barcelona → Füchse Berlin
  5. Simon Pytlick – Flensburg-Handewitt → Füchse Berlin
  6. Justus Fischer – Hannover → THW Kiel
  7. Mads Svane – Bjerringbro-Silkeborg → Aalborg Håndbold
  8. Viggó Kristjánsson – HC Erlangen → Flensburg-Handewitt
  9. Dylan Nahi – Industria Kielce → PSG
  10. Niclas Kirkeløkke – Flensburg-Handewitt → Fredericia HK. 

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top