Golla snýr heim með stór markmið
Sina Schuldt / AFP

Þýski landsliðsfyrirliðinn Johannes Golla segir metnaðinn mikinn hjá MT Melsungen fyrir komandi tímabil en félagið leikur í Meistaradeild Evrópu í fyrsta sinn í sögu sinni.

Golla sneri aftur til Melsungen í sumar eftir sex ár hjá Flensburg-Handewitt. Hann lék áður með félaginu á árunum 2015 til 2018 en snýr nú aftur til liðs sem hefur fest sig í sessi meðal bestu liða Þýskalands og fær nú tækifæri til að spreyta sig í Meistaradeildinni í fyrsta skipti í sögu félagsins eftir að Melsungen unnu Evrópudeildina á síðustu leiktíð. Markmiðið er þó ekki aðeins að taka þátt.

„Sem lið viljum við sýna að það þurfi að taka okkur alvarlega,“ sagði Golla í samtali við handball-world.news.

Þrátt fyrir að Meistaradeildin sé nýr vettvangur fyrir Melsungen telur Golla að liðið geti náð langt í keppninni. Þá nefnir hann einnig þýsku bikarkeppnina sem eitt af stóru markmiðunum en félagið hefur nokkrum sinnum verið nálægt því að komast í úrslitahelgina, Final4.

Þrátt fyrir að vera fyrirliði þýska landsliðsins gerir Golla sér grein fyrir því að hann þurfi að vinna sér inn hlutverk sitt hjá Melsungen á ný. Fyrst ætlar hann að kynnast leikkerfi Spánverjans, Roberto García Parrondo sem er á leið inn í sitt síðasta tímabil með liðið og aðlagast nýju umhverfi áður en hann tekur stærra leiðtogahlutverk innan hópsins.

Hann segir félagaskiptin jafnframt fela í sér tækifæri til að þróast enn frekar sem leikmaður, enda bíði hans nýjar áherslur, nýr þjálfari og nýjar áskoranir. Melsungen sendi skýr skilaboð með komu Golla í sumar og stefnir félagið á að berjast á toppnum, bæði í þýsku úrvalsdeildinni og í Meistaradeild Evrópu. Jaron Siewert tekur við liðinu eftir tímabilið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top