Portúgölsku bræðurnir, Francisco Costa og Martim Costa hafa verið mikið í umræðunni síðustu daga eftir að þeir sömdu við SG Flensburg-Handewitt. Þeir ganga í raðir þýska liðsins næsta sumar frá Sporting. Þeir eru þó langt frá því að vera eina bræðraparið sem hefur látið verulega að sér kveða í handboltanum. Fjölmörg bræðrapör hafa í gegnum tíðina unnið stærstu titla sem í boði eru og skipað sér sess meðal fremstu leikmanna íþróttarinnar. Danska handboltasíðan Hbold tók saman lista af nokkrum bræðrum sem hafa gert það gott á handboltavellinum undanfarin ár. Niklas og Magnus Landin eru eitt þekktasta dæmið frá Danmörku. Bræðurnir hafa átt farsælan feril saman með danska landsliðinu og unnið fjölda stórra titla. Þeir hafa einnig báðir orðið danskir meistarar þrisvar og unnið danska bikarinn þrisvar með THW Kiel. Eftir að hafa leikið hvor í sínu lagi um tíma verða þeir nú aftur liðsfélagar hjá Aalborg Håndbold. Þegar rætt er um bræðrapör í handboltanum er óhjákvæmilegt að nefna Nikola og Luka Karabatic. Þeir léku saman með franska landsliðinu á gullaldartímabili Frakka og voru hluti af liði sem vann bæði Ólympíuleika, heimsmeistaramót og Evrópumeistaramót. Nikola Karabatic varð sjálfur þrívegis Meistaradeildarmeistari og vann fjölda innlendra titla á löngum og afar farsælum ferli, meðal annars með Paris Saint-Germain. Daniel og Alex Dujshebaev hafa verið samherjar hjá pólska stórliðinu Industria Kielce í níu ár, fyrir utan tímabil þar sem Daniel var á láni. Nú hafa leiðir skilið hjá bræðrunum en þeir verða þó áfram báðir í þýsku Bundesligunni. Daniel hefur gengið til liðs við MT Melsungen en Alex heldur áfram hjá Gummersbach. Bræðurnir hafa saman unnið fjölda meistaratitla og bikarmeistaratitla í Póllandi. Meistaradeildartitilinn hefur hins vegar vantað í safnið, þrátt fyrir að Kielce hafi komist í úrslitaleik keppninnar tvisvar á þeirra tíma saman. Elias og Roi Ellefsen á Skipagøtu eru meðal yngstu bræðraparanna á listanum. Færeysku bræðurnir eru hluti af nýrri kynslóð leikmanna frá Færeyjum sem hefur vakið mikla athygli á alþjóðavettvangi. Elias hefur sérstaklega skapað sér nafn eftir frábæran feril með THW Kiel og færeyska landsliðinu. Spænsku tvíburarnir Djordje og Petar Cikusa hafa ekki þurft langan tíma til að ná þeim árangri sem margir leikmenn dreymir um allan ferilinn. Þeir hafa þegar unnið Meistaradeildina með FC Barcelona, þrátt fyrir ungan aldur, og eru enn samherjar hjá katalónska stórliðinu. Hjá TVB Stuttgart eru til að mynda tvö bræðrapör í leikmannahópnum. Þar leika þýsku bræðurnir Kai og Max Häfner auk ítölsku bræðranna Marco og Simone Mengon. Að lokum má nefna fleiri þekkt bræðrapör sem hafa sett svip sinn á handboltann, þar á meðal frönsku Gille-bræðurna, þýsku Müller-bræðurna og spænsku Guardiola-bræðurna.Landin bræðurnir sameinaðir
Karabatic-bræðurnir í sérflokki
Dujshebaev-bræðurnir skilja leiðir
Færeysku bræðurnir á Skipagøtu
Meistaradeildarmeistarar aðeins tvítugir
Fleiri en eitt bræðrapar hjá Stuttgart

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.