Þýskaland er Evrópumeistari í U18 ára flokki karla eftir sannfærandi sigur á Slóveníu 36-27 í úrslitaleik Evrópumótsins í Serbíu í dag. Þjóðverjar áttu þar með frábæran lokakafla á mótinu en liðið hafði áður lagt íslenska landsliðið að velli í átta liða úrslitum. Sá leikur reyndist jafnframt eini ósigur Íslands á mótinu. Ísland hafði unnið alla leiki sína í riðla- og milliriðlakeppninni og tryggði sér sæti í átta liða úrslitum með fullt hús stiga. Þar hafðu Þjóðverjar hinsvegar betur eftir brösugt gengi á mótinu í aðdraganda leiksins. Í úrslitaleiknum gegn Slóveníu var jafnræði með liðunum framan af. Slóvenar komust yfir, 8-5, um miðjan fyrri hálfleik en þá tók þýska liðið öll völd á vellinum. Þjóðverjar unnu næstu mínútur með yfirburðum og fóru í hálfleik með sex marka forskot 17-11. Þjóðverjar héldu áfram að auka forskotið eftir hlé og komust mest níu mörkum yfir 20-11. Slóvenar áttu erfitt með að finna svör við sterkum þýskum varnarleik og markvörðurinn Tobias Dengler átti stóran þátt í yfirburðunum. Þýskaland fagnaði að lokum öruggum sigri, 36-27, og tryggði sér þar með fjórða Evrópumeistaratitil sinn í U18 ára flokki. Þjóðverjar höfðu áður orðið Evrópumeistarar árin 2008, 2012 og 2021. Vincent Faciejew var markahæstur Þjóðverja með átta mörk en Tobias Dengler var valinn maður leiksins eftir að hafa varið tíu skot, eða 37 prósent þeirra skota sem hann fékk á sig. Íslenska liðið lét tapið gegn Þjóðverjum ekki slá sig út af laginu og vann Frakka í næsta leik. Í dag tryggði liðið sér síðan fimmta sætið á Evrópumótinu með sigri á Ungverjum. Þar með lýkur frábæru móti íslenska liðsins sem vann alla leiki sína að undanskildum átta liða úrslitaleiknum gegn Þýskalandi. Þjóðverjar, sem lögðu Ísland að velli í eina tapleik íslenska liðsins á mótinu, standa hins vegar uppi sem Evrópumeistarar.Ísland endaði í fimmta sæti

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.