Paul Drux, fyrrverandi landsliðsmaður Þýskalands og leikmaður Füchse Berlin, hefur mikla trú á þýska landsliðinu fyrir heimsmeistaramótið í janúar sem fram fer í Þýskalandi. Drux var einn þriggja fyrrverandi atvinnumanna sem handball-world fékk til að spá fyrir um komandi handboltatímabil. Þegar hann var beðinn um að koma með sitt stærsta „hot take“ fyrir veturinn beindi hann sjónum sínum að heimsmeistaramótinu. Drux telur að heimavöllurinn geti haft mikil áhrif á gengi þýska liðsins. „Ég held að við eigum eftir að sjá ótrúlega flott HM í janúar. Allt frá skipulaginu, stuðningsmönnunum og fullum höllum. Ég held að þetta verði alvöru handboltaveisla,“ sagði Drux. Hann gengur þó lengra og telur að þýska landsliðið geti nýtt sér stemninguna til að komast mjög langt í keppninni. „Ég er líka nokkuð viss um að við munum láta þetta bera okkur áfram sem þýskt lið og komast mjög, mjög langt,“ sagði hann en Þjóðverjar undir stjórn Alfreðs Gíslasonar töpuðu í úrslitaleik Evrópumótsins í janúar gegn Danmörku og eru til alls líklegir. Þýskaland hefur á undanförnum árum verið eitt af sterkustu landsliðum heims og vann heimsmeistaratitilinn á U21 árs landsliða árið 2023. A-landsliðið hefur jafnframt verið í fremstu röð og heimavöllurinn gæti gefið liðinu aukinn kraft. Hann þurfti að leggja skóna á hilluna árið 2024 vegna meiðsla en er nú kominn í stjórn félagsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.