Sebastian Barthold er nýr fyrirliði Mors-Thy í dönsku úrvalsdeildinni og fær því stórt hlutverk strax á sínu fyrsta tímabili hjá félaginu. Mors-Thy verður mótherji Vals í riðlakeppni Evrópudeildarinnar á komandi tímabili. Barthold fær Kasper „KD“ Didriksen og Rasmus Henriksen sér við hlið sem varafyrirliða en framundan er stórt ár hjá danska félaginu, eftir góðan árangur á síðustu leiktíð. Þjálfarinn Toni Johansson segir reynslu Barthold úr stærri deildum og Evrópukeppnum verða afar mikilvæga fyrir ungt lið Mors-Thy. „Það fylgir þessu ábyrgð. Ég þarf að standa vörð um gildi félagsins, stíga fram fyrir liðið þegar þess þarf og segja frá þegar eitthvað þarf að segja,“ segir Barthold. Barthold segir það jafnframt mikinn kost að hafa þá Didriksen og Henriksen sér við hlið. Þeir þekkja félagið vel, gera kröfur og eru óhræddir við að segja hlutina eins og þeir eru.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.