Portúgalski landsliðsmaðurinn, Luis Frade hrósar nýjum liðsfélögum sínum hjá Barcelona, þeim Sergey Hernández og Janusi Daða Smárasyni, en spænska stórliðið hóf undirbúning fyrir komandi tímabil í vikunni. Barcelona er komið aftur af stað eftir sumarfrí og nýju leikmennirnir hafa þegar vakið athygli hjá liðsfélögum sínum. Spænska stórliðið fékk markvörðinn Sergey Hernández frá Magdeburg í sumar sem á að fylla skarð Emil Nielsen og veita Viktori Gísla Hallgrímssyni samkeppni um markmannsstöðuna og þá gekk íslenski landsliðsmaðurinn Janus Daði Smárason til félagsins frá Pick Szeged. Er Janusi ætlað að fylla skarð Domen Makuc sem gekk í raðir Kiel í sumar en Makuc var valinn MVP á Final 4 úrslitahelgi Meistaradeildarinnar þar sem Barcelona stóð uppi sem sigurvegari í júní. „Þeir eru frábærir leikmenn,“ sagði Frade um nýju liðsfélagana í samtali við Mundo Deportivo. Hann vonast til þess að þeir aðlagist hratt að nýju umhverfi og geti hjálpað Barcelona að ná markmiðum sínum. „Ég vona að þeir komi sem best inn í hópinn, verði virkilega ánægðir hér og hjálpi okkur. Við munum gera allt sem við getum til að hjálpa þeim,“ sagði Frade. Barcelona hóf undirbúning sinn á mánudag með læknisskoðunum og líkamlegum prófum áður en liðið heldur í æfingabúðir í Encamp í Andorra. Eftir æfingabúðirnar liggur leiðin til Þýskalands þar sem Barcelona tekur þátt í Premium Cup. Þar mætir spænska stórliðið meðal annars Elmari Erlingssyni og félögum í HSG Nordhorn-Lingen, Füchse Berlin og Bjarka Má Elíssyni og félögum í Paris Saint-Germain.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.