Golla afþakkaði fyrirliðahlutverkið hjá Melsungen
Sina Schuldt / AFP

Johannes Golla sneri aftur til MT Melsungen í sumar eftir veru sína hjá SG Flensburg-Handewitt. Þrátt fyrir mikla reynslu sem fyrirliði ákvað þýski landsliðsfyrirliðinn að sækjast ekki eftir formlegu leiðtogahlutverki hjá Melsungen strax á fyrsta tímabilinu.

Golla, sem er 28 ára, þekkir vel til hjá Melsungen en þar hóf hann atvinnumannaferil sinn. Hann lék með félaginu í þrjú ár áður en hann hélt til Flensburg.

Golla hefur verið fyrirliði bæði þýska landsliðsins og Flensburg en við endurkomuna til Melsungen vildi hann ekki fara beint inn í fyrirliðateymi félagsins.

„Ég er ekki í fyrirliðateyminu og ég tók það skýrt fram. Mér fannst það ekki rétt,“ sagði Golla við Sport Bild. Golla segir mikilvægt að fyrirliði þekki vel til innan félagsins og hafi myndað sterk tengsl við liðsfélaga sína áður en hann tekur slíkt hlutverk að sér.

„Mín reynsla er sú að til þess að vera fyrirliði þarftu að þekkja félagið. Þú þarft að þekkja fólkið og þú þarft að þekkja liðsfélaga þína. Það á ekki við um mig hjá Melsungen eins og staðan er núna,“ sagði Golla.

Það þýðir þó ekki að hann ætli að forðast ábyrgð. Golla segist ætla að taka ábyrgð bæði innan vallar og utan, þrátt fyrir að gegna ekki formlegu leiðtogahlutverki. Þrátt fyrir að hafa áður leikið þrjú ár með Melsungen telur Golla rétt að gefa sér tíma til að kynnast núverandi umhverfi félagsins áður en hann tekur að sér stærra hlutverk. Hann útilokar þó ekki að það breytist síðar.

„Kannski bara ekki á fyrsta árinu. Ég er mjög afslappaður gagnvart þessu og hafði alls engan metnað fyrir því að taka þetta að mér strax. Eins og staðan er núna finnst mér þetta rétt.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top