Frá úrslitaleik Meistaradeildarinnar í dönsku B-deildina
Andreas Gora / AFP

Lasse Andersson lék sinn síðasta leik fyrir Füchse Berlin í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu en aðeins nokkrum mánuðum síðar er danski landsliðsmaðurinn kominn í dönsku B-deildina með HÖJ Elite. Andersson viðurkennir að munurinn sé gríðarlegur en stendur fast við ákvörðun sína um að snúa heim til Danmerkur.

Það hafði legið fyrir frá því í september 2025 að Andersson myndi yfirgefa Füchse Berlin að loknu síðasta tímabili og ganga til liðs við HÖJ Elite.

Forsendurnar breyttust hins vegar þegar HÖJ tapaði í umspili um sæti í dönsku úrvalsdeildinni í maí og féll niður í næstefstu deild eftir aðeins eitt ár meðal þeirra bestu.

Hinn 32 ára gamli Andersson ákvað þrátt fyrir það að standa við ákvörðun sína.

Andersson gerir sér fulla grein fyrir því að íþróttalega sé um mikla breytingu að ræða eftir árin hjá Füchse Berlin.

„Það er ekkert leyndarmál að íþróttalega sé þetta ekki það sama. Það er gríðarlegur munur á því að spila í dönsku B-deildinni og Meistaradeildinni,“ sagði Andersson við TV2 Sport.

Hann varar þó við því að HÖJ geti gengið að einhverju vísu í baráttunni um að komast strax aftur upp.

„Það er líka mikilvægt að hafa í huga að þú ert bara betri en hinir ef þú vinnur vinnuna þína og gefur 100 prósent. Við komumst bara upp ef við vinnum ákveðinn fjölda leikja. Til þess þurfum við að spila betri handbolta en hin liðin.“

Þrátt fyrir að Andersson spili nú í næstefstu deild Danmerkur hefur Nikolaj Jacobsen landsliðsþjálfari ekki lokað dyrunum á frekari landsliðsverkefni.

„Það getur vel verið að eitt ár í dönsku B-deildinni veikji hann, en þá verðum við bara að hugsa vel um hann þegar hann kemur í landsliðsverkefnin. Þá er ég nokkuð viss um að hann verði fljótt kominn aftur í sitt besta form,“ sagði Jacobsen.

Andersson viðurkennir að orð landsliðsþjálfarans veiti honum ákveðið öryggi en segir þau ekki hafa ráðið ákvörðun sinni.

„Auðvitað skipti það máli. Ég er samt nokkuð viss um að ég hefði tekið þessa ákvörðun hvort sem hann hefði sagt þetta eða ekki. Ég tek mínar ákvarðanir út frá mínu daglega lífi og því sem mig langar að gera.“

Andersson veit jafnframt að stuðningur Jacobsen tryggir honum ekki sæti í danska landsliðinu.

„Sæti í landsliðinu er aldrei sjálfgefið. Það er ekkert öruggt að ég verði einfaldlega valinn. Ég þarf enn að sýna ákveðið getustig.“

Andersson stendur því frammi fyrir gjörbreyttum veruleika eftir síðasta tímabil. Frá því að berjast um stærsta félagsliðstitil Evrópu með Füchse Berlin er verkefnið nú að hjálpa HÖJ Elite að vinna sér aftur sæti í dönsku úrvalsdeildinni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top