Matej Mandić, markvörður SC Magdeburg og króatíska landsliðsins, hefur verið sektaður um 2.500 evrur af áfrýjunardómstól EHF vegna atviks við verðlaunaafhendingu á EM karla fyrr á árinu. Króatíska handknattleikssambandið þarf jafnframt að greiða sekt vegna málsins. Málið snýr að fána sem Mandić sýndi við verðlaunaafhendinguna eftir að Króatía tryggði sér bronsverðlaun á mótinu. Á fánanum var nafn fæðingarbæjar Mandić, Ljubuški. Fáninn var hins vegar ekki á lista yfir leyfilega fána samkvæmt reglum EHF og var því ekki heimilaður við verðlaunaafhendinguna. Ljubuški er að mestu byggður Króötum en bærinn tilheyrir Bosníu og Hersegóvínu. EHF hafði áður sektað króatíska handknattleikssambandið um 10.000 evrur fyrir brot á reglum varðandi verðlaunaafhendinguna og fánareglum sambandsins. Af þeirri upphæð eru 2.500 evrur skilorðsbundnar til tveggja ára. Króatíska sambandið áfrýjaði þeirri niðurstöðu en áfrýjunardómstóll EHF hafnaði áfrýjuninni og staðfesti sektina. EHF áfrýjaði hins vegar einnig upphaflegri niðurstöðu og fór fram á persónulega refsingu fyrir Mandić. Áfrýjunardómstóllinn féllst að hluta til á þá kröfu og sektaði markvörðinn um 2.500 evrur. Niðurstaðan er ekki endanleg þar sem hægt er að fara með málið fyrir gerðardómstól evrópska handboltans, ECA, innan 21 dags. Málið er hluti af eftirmálum EM 2026. Dagur Sigurðsson, landsliðsþjálfari Króatíu, hafði áður verið sektaður um 4.000 evrur vegna ummæla í garð EHF á blaðamannafundi fyrir undanúrslitin. Helmingur þeirrar sektar var skilorðsbundinn til tveggja ára.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.