

Handkastið heldur áfram að hita upp fyrir Olís-deild karla tímabilið 2026/2027 og hefur fengið einn af sérfræðingum sínum, Einar Inga Hrafnsson til að sjóða saman í löngu tímabæra spá fyrir komandi tímabil. Þetta verður þriðja spá Handkastsins næsta tímabil en Handkastið birti fyrstu ótímabæra spá sína um miðjan maí. Í byrjun júlí birti Einar Ingi síðan sína fyrstu ótímabæru spá en nú er komið að tímabæri spá frá Mosfellingnum. Gefum Einari Inga orðið: Áfram höldum við, minna en mánuður í mót og liðin með allt í botni í undirbúning. Það er áhugavert að sjá hvernig liðin stilla upp sínum undirbúningi, sumir þjálfara vilja spila mikið á meðan aðrir kjósa að spila minna. Enn aðrir kjósa að fara í æfingaferðir erlendis til að þétta hópinn og spila þá við misgóð erlend lið. Á meðan flestir þjálfarar halda sig heima og láta nægja að máta sig við tilvonandi mótherja í Olís-deildinni. Það eru ákveðnar breytingar í nýju spánni. Við sjáum meiðsli lykilpósta hafa áhrif á stöðu nokkurra liða, sem og að góð úrslit lyfta óvæntum Þórsurum inn í úrslitakeppni. Framarar virðast þungir og ekki eins spennandi og maður hefði áætlað. Leiðtogaleysi að plaga liðið og Mosfellingar taka því framúr þeim. Haukarnir, sem geyma spaða ásinn ennþá í spilastokknum halda deildarmeistaratitlinum á meðan Eyjamenn detta út úr úrslitakeppni í nýrri spá. Það verður spennandi að sjá hvort þjóðhátíðar uppgjörið komi fyrir mót og muni breyta leiknum fyrir Eyjuna á næstu vikum. Ótímabær spá fyrir Olís-deild karla Fyrsta ótímabæra spáin fyrir Olís-deild karla Tímabær spá Einars Inga:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.