Arnór Atla fær til sín Færeying
Holstebro

Arnór Atlason, þjálfari TTH Holstebro í dönsku úrvalsdeildinni hefur styrkt leikmannahóp sinn með færeyska landsliðsmanninum Teis Horn. Horn, sem er þrítugur línumaður, gengur til liðs við TTH frá og með deginum í dag.

Teis hefur á ferlinum leikið með Ribe-Esbjerg, Aarhus Håndbold og TM Tønder í Danmörku auk Follo HK í Noregi. Hann hefur einnig verið mikilvægur leikmaður í færeyska landsliðinu.

TTH þarf um þessar mundir að takast á við fjarveru Frederiks Arnoldsen, sem er frá vegna hnémeiðsla. Arnór Atlason ákvað því að bæta reynslumiklum línumanni við hópinn.

„Á meðan Frederik Arnoldsen er áfram frá vegna meiðsla og mikið af leikjum fram undan viljum við styrkja hópinn. Við eigum 27 leiki fyrir jól auk mikilla ferðalaga. Þess vegna er ég ánægður með að okkur hafi tekist að fá aukinn kraft inn í hópinn,“ segir Arnór í tilkynningu félagsins.

Arnór þekkir vel til Teis Horn og segir hann geta lagt liðinu lið á báðum endum vallarins.

„Teis er mikill baráttumaður og línumaður sem hefur sannað sig bæði í dönsku úrvalsdeildinni og á alþjóðlegum vettvangi með færeyska landsliðinu. Hann er góður á báðum endum vallarins og leikmaður sem á eftir að hjálpa okkur á mikilvægum kafla tímabilsins.“

Teis er sjálfur spenntur fyrir nýju áskoruninni og sérstaklega fyrir því að spila fyrir framan stuðningsmenn TTH í Gråkjær Arena.

„Þetta verður spennandi og ég hlakka mikið til að byrja. Sérstaklega hlakka ég til að spila í Gråkjær Arena. Það er einn flottasti heimavöllur Danmerkur og virkilega skemmtilegur salur til að spila í.“

Íslendingarnir Jóhannes Berg Andrason og Benedikt Gunnar Óskarsson leika með liðinu á komandi tímabili og þar leika þeir undir stjórn Arnórs Atlasonar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top