Handkastið hefur verið leiðandi í umfjöllun um íslenskan handbolta síðustu ár og nú fer að styttast í að tímabilið hér heima fari af stað. Handkastið heldur úti tveimur hlaðvarpsþáttum í viku þegar tímabilið er í gangi auk þess að fjalla vel og ítarlega um allt sem tengist íslenska boltanum hér á vefnum. Olís-deild karla hefst í byrjun september en þangað til ætlar Handkastið að hita upp fyrir deildina og fjalla um öll liðin í deildinni. Í dag förum við yfir HK. Síðasta tímabil: Þjálfarinn: Breytingar: Fylgist með: Framtíðin: Sjá einnig:
HK tókst aftur að komast í úrslitakeppnina í fyrra þar sem þeir mættu Valsmönnum og hefði hæglega getað stolið fyrsta leiknum í einvíginu á Hlíðarenda ef dómgæslan hefði fallið með þeim. Annað tímabilið í röð þar sem HK er á kunnulegum slóðum, vinna liðina fyrir neðan sig en eru ennþá töluvert á eftir betri liðunum í deildinni.
Halldór Jóhann Sigfússon að fara inn í sitt þriðja tímabil með HK þar sem uppskeran fyrstu 2 árin hefur verið 8.sætið í deildinni og fallið út úr úrslitakeppninni í 8 liða úrslitum. Miklar breytingar á HK liðinu í ár og verður Halldór Jóhann því að setja saman nýja útilínu.
Sigurður Jeffersson og Hjörtur Ingi Halldórsson gengu báðir til liðs við Hauka. Ágúst Guðmundsson fór í FH og Haukur Ingi Hauksson fór til Fram. Þarna eru nánast 75% marka HK frá því í fyrra farin. Trúgvi Hávardsson gekk til liðs við HK frá Færeyjum og Andrew Wisman frá Danmörku og mun mæða mikið á þeim að bæta upp fyrir mörkin sem HK missti milli tímabila.
Lykilmenn:
Brynjar Vignir Sigurjónsson, Trúgvi Hávardsson, Andrew Wisman
Trúgvi Hávardsson kom til liðsins frá StíF í Færeyjum og hefur heillað mikið í leikjum á undirbúningstímabilinu.
Örn Alexandersson er ungur og efnilegur leikmaður uppalinn í Kórahverfinu. Var markahæsti leikmaður HK 2 í Grill66-deildarinnar í fyrra með tæp átta mörk að meðaltali í leik. Hraustur drengur sem lætur til sín taka á báðum enda vallarins. Örn gæti sprungið út í vetur.
Við hverju má búast:
Það er ótrúlega erfitt að segja til um það við hverju má búast við af HK-liðinu eftir þessar breytingar sem áttu sér stað í sumar. Líkt og fyrr segir eru nánast öll mörk liðsins frá því í fyrra farin og mun mæða mikið á nýju mönnunum. Brynjar Vignir Sigurjónsson var mikið meiddur í fyrra og þarf hann að eiga gott tímabil ef liðið ætlar sér að berjast um sæti í úrslitakeppninni.
Umfjöllun um kvennalið ÍBV
Umfjöllun um kvennalið Hauka
Umfjöllun um kvennalið Vals
Umfjöllun um kvennalið KA/Þórs
Umfjöllun um karlalið Selfoss
Umfjöllun um karlalið Víkings
Umfjöllun um karlalið Þórs
Umfjöllun um karlalið Aftureldingar
Umfjöllun um karlalið Vals
Umfjöllun um kvennalið ÍR

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.