Welcome to the Aron Pálmarsson show
J.L.Long

Handkastið hefur verið leiðandi í umfjöllun um íslenskan handbolta síðustu ár og nú fer að styttast í að tímabilið hér heima fari af stað. Handkastið heldur úti tveimur hlaðvarpsþáttum í viku þegar tímabilið er í gangi auk þess að fjalla vel og ítarlega um allt sem tengist íslenska boltanum hér á vefnum.

Olís-deild karla hefst í byrjun september en þangað til ætlar Handkastið að hita upp fyrir deildina og fjalla um öll liðin í deildinni.

Í dag förum við yfir FH.

Síðasta tímabil:
FH komust all leið í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn þar sem þeir töpuðu gegn Val eftir að hafa tryggt sér annað sætið í deildinni. Sigursteinn Arndal þjálfari liðsins kom ungum mönnum í stærra hlutverk innan liðsins og voru þeir orðnir burðarásar í velgengi þess. FH eru eflaust svekktir að hafa tapað fyrir nágrönnum sínum í Haukum í undanúrslitum bikarsins en heilt yfir var þetta mjög jákvætt tímabil fyrir FH.

Þjálfarinn:
Aron Pálmarsson hefur tekið við stjórnartaumunum hjá FH og hefur Sigursteinn Arndal fært sig í aðstoðarþjálfarasætið. Eins og mikið hefur verið rætt þá hafði Aron líst því yfir margoft að hugur hann stefndi ekki í þjálfun eftir að skórnir fóru á hilluna en eftir að Steini dró hann á flot eftir áramót og fékk hann inn í þjálfarateymið virðist hafa kviknað á þjálfara bakteríunni. Fór svo að þeir höfðu sætaskipti innan FH og verður virkilega forvitnilegt að sjá hvernig Aroni reiðir af á sínu fyrsta tímabili sem gæti einnig verið hans síðasta í bili á Íslandi því hann hefur lýst því eftir að stefnan sé sett á þjálfun erlendis. 

Breytingar:
Garðar Ingi Sindrason hélt í atvinnumennskuna í sumar en FH líkt og undanfarin ár hafa gert vel á félagsskipta markaðnum. Ómar Darri mun fá ennþá stærra hlutverk í liðinu og það verður spennandi að sjá hvernig Ágúst Guðmundsson kemur inn í liðið. Brynjar Narfi Arndal ætti að fá stærra hlutverk í vetur en meiðsli Daníels Freys Andréssonar gætu sett smá strik í reikninginn ef FH sækir hann markmann fyrir hann þá mun öll ábyrgðin liggja á Jóni Þórarnir Þorsteinssyni.  Antoine Óskar Pantano og Einar Rafn Eiðsson munu hjálpa til við breiddina og svo sótti FH Eiður Rafn Valsson frá Fram sem var mikilvægt þar sem þeir voru orðnir fáliðaðir í hægra horninu.

Lykilmenn:
Jón Bjarni Ólafsson, Jón Þórarinn Þorteinsson, Ágúst Guðmundsson

Fylgist með:
Ágúst Guðmundsson gekk til liðsins fyrir tímabilið frá HK en hægri skyttan var oft vandræða staða fyrir FH á síðasta tímabili. Ágúst hefur verið lykilmaður í yngri landsliðinum Íslands undanfarin ár og eru því miklar vonir bundnar við að hann taki næsta skref á sínum ferli í Kaplakrika og verði einn af bestu mönnum Olís deildarinnar.

Framtíðin:
Brynjar Narfi Arndal er einn efnilegasti leikmaður landsins og þó víðar væri leitað. Brynjar Narfi var yngsti leikmaður í sögu deildarinnar í hittífyrra þegar hann kom inná í leik gegn Fjölni. Hann fékk tækifæri með FH-liðinu á síðustu leiktíð og hlutverk hans gæti stækkað töluvert á komandi tímabili. Var í stóru hlutverki með 2008 landsliðinu á Evrópumótinu í sumar þrátt fyrir að vera fæddur árið 2010.

Við hverju má búast:
Það verður mikil athygli á liði FH í vetur enda mikil eftirvænting fyrir því að sjá einn af okkar allra bestu handboltamönnum sögunnar stýra sínu uppeldisfélagi í fyrsta skipti á sínu fyrsta ári sem meistaraflokksþjálfari. Liðið hefur haldið í kjarnann en þó misst leikmenn sem voru í stórum hlutverkum. Það gæti tekið smá tíma fyrir Aron að slípa saman liðið. FH-ingar ættu samt sem áður að stefna á að vera í titilbaráttu á öllum vígstöðvum.

Sjá einnig:
Umfjöllun um karlalið HK
Umfjöllun um kvennalið ÍBV
Umfjöllun um kvennalið Hauka
Umfjöllun um kvennalið Vals
Umfjöllun um kvennalið KA/Þórs
Umfjöllun um karlalið Selfoss
Umfjöllun um karlalið Víkings
Umfjöllun um karlalið Þórs
Umfjöllun um karlalið Aftureldingar
Umfjöllun um karlalið Vals
Umfjöllun um kvennalið ÍR

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top