Sextán Íslendingar í nýrri Meistaradeild
Ruben De La Rosa / NurPhoto via AFP

Meistaradeild Evrópu karla fer af stað í dag. Alls eru 16 íslenskir leikmenn hjá átta félögum í keppninni í vetur auk þess sem Gunnar Steinn Jónsson er í þjálfarateymi sænska félagsins, Kristianstad.

Meistaradeildin verður með nýju sniði á tímabilinu. Liðunum hefur verið fjölgað úr 16 í 24 og er þeim skipt í sex fjögurra liða riðla. Tvö efstu lið hvers riðils komast áfram í milliriðla en hin tvö færast yfir í Evrópudeildina.

Flesta Íslendingana er að finna hjá sænska liðinu IFK Kristianstad, alls fjóra. Það eru þeir Baldur Fritz Bjarnason, Einar Bragi Aðalsteinsson, Ólafur Andrés Guðmundsson og Andri Erlingsson.

Þrír Íslendingar leika með SC Magdeburg, Ómar Ingi Magnússon, Gísli Þorgeir Kristjánsson og Elvar Örn Jónsson og tveir með Barcelona, Janus Daði Smárason og Viktor Gísli Hallgrímsson.

Hinir fimm dreifast á fimm félög. Bjarki Már Elísson leikur með Paris Saint-Germain, Reynir Þór Stefánsson með MT Melsungen, Orri Freyr Þorkelsson með Sporting CP, Þorsteinn Leó Gunnarsson með FC Porto og Kristján Örn Kristjánsson með Skanderborg.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top