SC Magdeburg, lið íslensku landsliðsmannanna Elvars Arnar Jónssonar, Gísla Þorgeirs Kristjánssonar og Ómars Inga Magnússonar, er talið sigurstranglegasta lið Meistaradeildar Evrópu í handbolta á komandi tímabili. Handball-Planet birti í gær árlegan styrkleikalista sinn yfir öll 24 liðin sem taka þátt í Meistaradeildinni tímabilið 2026/27. Þar trónir Magdeburg á toppnum. Barcelona lið Viktors Gísla Hallgrímssonar og Janúar Daða Smárasonar kemur næst á eftir Magdeburg í öðru sæti listans en Barcelona eru ríkjandi meistarar. Ungverska stórliðið ONE Veszprém er í þriðja sæti en liðið hefur ekki komist í FInal 4 undanfarin ár. Álaborg er í fjórða sæti og Füchse Berlin í því fimmta. Riðlakeppni Meistaradeildarinnar hefst í dag, miðvikudaginn 9. september, en fyrsta umferðin verður leikin í dag og á morgun. Nýtt keppnisfyrirkomulag tekur gildi í Meistaradeildinni á þessu tímabili. Liðunum 24 er skipt í sex fjögurra liða riðla og komast tvö efstu lið hvers riðils áfram í 12 liða milliriðla. Liðin sem enda í þriðja og fjórða sæti halda hins vegar áfram keppni í Evrópudeildinni. Í milliriðlunum verður liðunum tólf skipt í tvo sex liða riðla og fjögur efstu lið hvors riðils tryggja sér sæti í átta liða úrslitum. Íslendingarnir þrír hjá Magdeburg fara því inn í keppnina með miklar væntingar á herðum sér samkvæmt mati Handball-Planet. Fyrsta verkefni þeirra verður á heimavelli í kvöld þegar norska liðið Kolstad kemur í heimsókn. Sporting CP er í sjötta sæti styrkleikalistans, Orlen Wisła Płock í því sjöunda og Industria Kielce í áttunda. HBC Nantes og Pick Szeged loka topp tíu. Alls leika sextán Íslendingar í Meistaradeildinni í ár. Styrkleikalisti Handball-Planet: Leikir 1. umferðar: Miðvikudagur 9. september Fimmtudagur 10. september
Aalborg Håndbold – Paris Saint-Germain
Industria Kielce – Kriens-Luzern
ONE Veszprém – FC Porto
HC Zagreb – RK Celje
HBC Nantes – Wisła Płock
Barcelona – SAH Aarhus
SC Magdeburg – Kolstad
RK Partizan – Füchse Berlin
Pick Szeged – IFK Kristianstad
Sporting CP – GOG
Dinamo Bucuresti – Montpellier
MT Melsungen – HC Vardar

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.