Stymmi spáir í spilin: 4. umferð Olísdeildar kvenna

Stymmi Klippari mun í allan vetur spá í spilin og tippa á hvernig komandi umferð mun fara í Olís deildum karla og kvenna.

Hér að neðan má sjá hvernig hann telur að 4.umferð fari í Olís deild kvenna.

Fram – Selfoss (Fimmtudagur 18:00)  /  Sigurvegari: Fram

Fram lenti í vandræðum í síðustu umferð þar sem þær unnu HK undir lok leiksins svo það kom ekki að sök. Selfoss fór til Vestmannaeyja og gaf ÍBV leik undir lokin en máttu sætta sig við tap á endanum. Selfoss hafa bætt við sig tveim pólskum leikmönnum og verður gaman að sjá hvernig þær koma inn í liðið. Ég held að Fram muni ekki eiga annan slakan leik eins og gegn HK í síðustu umferð og vinni Selfoss.

KA/Þór – Valur (Föstudagur 18:00)  /  Sigurvegari: Valur

KA/Þór hefur átt erfitt uppdráttar sem og Valur sem hafa ekki byrjað svona illa í fjölda ára. KA/Þór skoraði einungis 5 mörk í fyrri hálfleik gegn ÍR í síðustu umferð svo Jónatan Magnússon er eflaust búinn að drilla sóknarleikinn fyrir þennan leik. Valskonur munu þó ná að rétta úr kútnum á morgun og sækja 2 stig fyrir norðan.

Stjarnan – Haukar (Föstudagur 18:30)  /  Sigurvegari: Haukar

Besta lið landsins mætir í heimsókn í Garðabæinn annað kvöld. Stjarnan vann góðan sigur á Gróttu í síðustu umferð og mikilvægt fyrir liðið að vera komnar á blað í deildinni. Það stendst ekkert lið í Olís deildinni Haukum snúning þessa dagana og þær munu vinna nokkuð þægilega í Garðabænum á morgun og Jóhanna Margrét mun halda áfram að fara á kostum.

Grótta– ÍR (Föstudagur 19:30)  /  Sigurvegari: ÍR

ÍR hefur byrjað deildina af miklum krafti og eru taplausar á toppi deildinnar ásamt Haukum. Grótta tapaði gegn Stjörnunni í síðustu umferð þar sem Katrín Scheving fór á kostum í liði Gróttu og skoraði 15 mörk. Hún verður að eiga annan eins leik á morgun ef þær ætla eiga mögulega gegn ÍR konum. Ég held að reynslan í ÍR liðinu tryggi þeim enn einn sigurinn í upphafi tímabilsins og þær taki bæði stigin heim í Breiðholtið.

HK – ÍBV (Laugardagur 15:00)  /  Sigurvegari: ÍBV

Lokaleikur umferðarinnar fer fram í Kórnum á laugardaginn þegar ÍBV kemur í heimsókn. Eyjakonur var spáð góðu gengi í vetur en hafa aðeins verið að hiksta þó þær séu komnar með 4 stig á töfluna. HK voru hörku flottar gegn Fram í síðustu umferð og leiddu nánast allan leikinn en töpuðu leiknum á lokamínútum leiksins. ÍBV mun sýna mátt sinn og meginn á laugardaginn og fara nokkuð þægilega í gegnum HK sem verða ennþá í leit af fyrstu stigum tímabilsins.

1.umferð (4 réttir)
2.umferð (4 réttir)
3. umferð (4 réttir)

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top