Kiel vildi halda Elias
Jens Kr Vang

Forráðamenn THW Kiel vildu framlengja samninginn við færeysku stórstjörnuna Elias Ellefsen á Skipagøtu en fjölskylduaðstæður réðu mestu um ákvörðun hans að ganga til liðs við Álaborg næsta sumar.

Elias, sem er 24 ára gamall, yfirgefur Kiel að loknu yfirstandandi tímabili eftir fjögur ár í þýsku Bundesligunni og heldur til Danmerkur þar sem hann hefur samið við Álaborg.

Þýska stórveldið hafði mikinn áhuga á að halda Færeyingnum og hóf snemma viðræður við hann um nýjan samning. Viktor Szilagyi, framkvæmdastjóri Kiel, segir að í viðræðunum hafi komið í ljós að persónulegar aðstæður leikmannsins.

Á endanum vó löngunin til að vera nær fjölskyldunni þyngra en áframhaldandi dvöl í Þýskalandi.

„Elias tók ekki ákvörðun gegn THW Kiel heldur ákvörðun um að komast nær fjölskyldu sinni. Það verðum við að virða og sætta okkur við,“ sagði Szilagyi við heimasíðu Kiel.

Elias gekk til liðs við Kiel árið 2023 og hefur síðan þá orðið einn af lykilmönnum liðsins. Hann hefur skorað 467 mörk í 122 leikjum fyrir félagið og unnið bæði þýska bikarinn og Ofurbikarinn með Kiel.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top