Handknattleikssamband Evrópu, EHF, hefur opnað á að landslið Rússlands og Hvíta-Rússlands geti verið skráð til þátttöku í komandi mótum. Sambandið gerir þó verulega fyrirvara vegna öryggismála og óvissu um framkvæmd leikja í Evrópu. Afstaðan kemur í kjölfar ákvörðunar Alþjóðahandknattleikssambandsins, IHF, um að greiða fyrir fullri endurkomu landsliða þjóðanna í alþjóðlegar keppnir eftir tilmæli Alþjóðaólympíunefndarinnar, IOC. Eftir fund framkvæmdastjórnar EHF í Búkarest staðfesti sambandið að það samþykkti í grundvallaratriðum mögulega skráningu þjóðanna. Það jafngildir þó ekki tryggingu fyrir því að liðin geti tekið þátt enda séu ýmis lagaleg, skipulagsleg og öryggistengd álitaefni óleyst. EHF hefur rætt stöðuna við önnur evrópsk sérsambönd, meðal annars UEFA og FIBA, í gegnum samstarfsvettvanginn European Team Sports. Sambandið leggur áherslu á að málið snúist um meira en handbolta. „Þetta er ekki eingöngu handboltamál heldur afleiðing stríðsins sem enn stendur yfir, án þess að pólitísk lausn sé í sjónmáli,“ segir í yfirlýsingu EHF. Sambandið áskilur sér rétt til að endurmeta hvort raunhæft sé að halda leiki víðs vegar um Evrópu. Þar verði meðal annars tekið mið af mögulegum úrskurðum Alþjóðaíþróttadómstólsins, CAS, auk öryggis við drætti og ferðalög. Þá segir EHF að samstarfið við Úkraínu verði eflt til að tryggja áframhaldandi þátttöku landsins í evrópskum og alþjóðlegum handbolta.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.