Barcelona steinlá í úrslitaleiknum – Veszprém heimsmeistari
IHF

Viktor Gísli Hallgrímsson og Janus Daði Smárason urðu að sætta sig við silfur á HM félagsliða í Egyptalandi eftir stórtap Barcelona gegn Veszprém í úrslitaleiknum í gær, 42–33.

Veszprém vann þar með keppnina í annað sinn og batt enda á 64 leikja ósigraða röð Barcelona. Níu marka sigurinn er sá stærsti í úrslitaleik í sögu keppninnar.

Ungverska liðið byrjaði af krafti og komst í 9–3 eftir aðeins níu mínútur. Barcelona náði að minnka muninn í tvö mörk undir lok fyrri hálfleiks en Veszprém svaraði með sterkum kafla og leiddi 22–16 í hálfleik. Eftir hlé hélt liðið áfram að auka forskotið og sigurinn var aldrei í hættu.

Emil Nielsen, fyrrverandi markvörður Barcelona, var valinn maður leiksins. Hugo Descat skoraði tíu mörk fyrir Veszprém og Nedim Remili átta. Timothey N’Guessan var markahæstur Barcelona með níu mörk og Aleix Gómez skoraði fimm.

Viktor Gísli kom í mark Barcelona og átti vörslur í fyrri hálfleik þegar liðið vann sig aftur inn í leikinn. Markverðir Barcelona náðu þó ekki að hemja öflugan sóknarleik Veszprém.

Al Ahly vann bronsið með sigri á egypsku nágrönnum sínum í Zamalek, 30–25. Al Ahly leiddi 19–13 í hálfleik og hélt forskotinu út leikinn. Saif Hany var valinn maður leiksins.

Füchse Berlín hafnaði í fimmta sæti eftir sigur á brasilíska liðinu Pinheiros, 31–27. Tobias Grøndahl var markahæstur með sjö mörk en Mathias Gidsel sat á bekknum allan leikinn.

Burgan frá Kúveit vann síðan Montada frá Marokkó, 29–25, í leiknum um sjöunda sætið. Montada hafði leitt 15–12 í hálfleik en Burgan sneri leiknum við eftir hlé og vann sinn fyrsta sigur í keppninni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top