Óvenjuleg staða kom upp í viðureign Lemgo og Hamburg í þýsku Bundesligunni í gær þegar Julian Köppl þurfti að sjá einn um dómgæsluna inni á vellinum. Dómarafélagi hans, Denis Regner, meiddist á hægra hné í upphitun og gat því ekki dæmt með honum. Regner fylgdist þó með leiknum frá ritaraborðinu með hnéð vafið og var í samskiptum við Köppl í gegnum samskiptabúnað þeirra. Þannig gat hann áfram aðstoðað félaga sinn við dómgæsluna þrátt fyrir meiðslin. Ekki voru öll vandamál dómaranna þar með úr sögunni því sambandið milli þeirra bilaði í síðari hálfleik. Köppl þurfti því að halda áfram án þess að geta nýtt sér aðstoð Regners í gegnum búnaðinn. Lemgo vann leikinn á heimavelli, 34–30, eftir að hafa verið 16–13 yfir í hálfleik. Niels Versteijnen var markahæstur hjá heimamönnum með níu mörk en Martin Hovde skoraði sjö mörk fyrir Hamburg. Þetta var fimmta tap Hamburg í fyrstu sjö umferðum deildarinnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.