Franska félagið Montpellier hefur framlengt samninga við Valentin Porte og Zvonimir Srna. Tilkynnt var um framlengingarnar á blaðamannafundi hjá félaginu í gær. Porte, fyrirliði Montpellier, framlengdi samning sinn um tvö tímabil og er nú samningsbundinn félaginu til júní 2029. Hann gekk til liðs við Montpellier árið 2016 og hefur því leikið með liðinu í áratug. Porte segir bæði fjölskylduaðstæður og metnað félagsins hafa haft áhrif á ákvörðun sína. Þá hafi framlenging Srna styrkt hann í þeirri trú að hann vildi vera áfram. Króatíski landsliðsmaðurinn Srna framlengdi samning sinn um þrjú tímabil og er nú samningsbundinn Montpellier til júní 2031. Erick Mathé, þjálfari Montpellier, fagnar því að leikmenn í fremstu röð vilji halda áfram hjá félaginu þrátt fyrir áhuga annarra stórliða í Evrópu. Hann segir Srna hafa komið af miklum krafti inn í liðið og látið til sín taka eins og hann hefði verið hjá félaginu í tíu ár.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.