Ef Selfoss vinnur ekki í kvöld þá falla þeir
HSB PHOTO

Tvö neðstu liðin í Olís-deild karla, Selfoss og Víkingur mætast í 7.umferð deildarinnar í kvöld klukkan 19:30 á Selfossi.

Selfoss er með eitt stig eftir jafntefli gegn Stjörnunni fyrr á tímabilinu en Víkingur er með tvö stig en þeir unnu Þórsara fyrr á tímabilinu. Spáð var fyrir um leikinn í nýjasta þætti Handkastsins.

,,Þetta er leikurinn," sagði Séfræðingurinn áður en Stymmi klippari kom með sleggju dóm.

,,Á ég að koma með eina sleggju? Ef Selfoss vinnur ekki þá falla þeir. Ég hef meiri trú á því að Víkingar sæki óvænt stig hér og þar í vetur."

,,Mér finnst þetta mikilvægari leikur fyrir Selfyssinga þó að þetta sé að sjálfsögðu mikilvægur leikur fyrir bæði lið. Selfoss verður að vinna þennan leik. Ef Víkingur tapar þessum leik þá er ég ekki að dæma þá niður en ef Selfoss tapar þessum leik þá eru þeir einir á botninum með eitt stig."

,,Ég held að Víkingarnir pakki þessum leik saman," sagði Kristinn Björgúlfsson gestur þáttarins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top