Handknattleiksdeild Gróttu hefur gert samninga við þrjá unga og efnilega leikmenn félagsins. Um er að ræða þá Daníel Þór Þórsson, Halldór Inga Hinriksson og Magnús Malik Nielsen Friðriksson sem allir eru fæddir árið 2010 og eru á 16. aldursári. Samningarnir eru liður í framtíðaruppbyggingu Gróttu en allir þrír leikmennirnir eru í lykilhlutverkum í 3. flokki og U-liði félagsins. Daníel Þór er rétthentur leikmaður sem getur bæði leikið sem leikstjórnandi og skytta. Hann þykir öflugur skotmaður, er hraður og sterkur beggja megin vallarins. Halldór Ingi er örvhentur hornamaður sem leikur aðallega í hægra horninu. Hann er öflugur og viljugur leikmaður sem hefur tekið stórum framförum undanfarinn vetur. Magnús Malik er rétthentur vinstri hornamaður sem þykir búa yfir mikilli skottækni og bindur félagið vonir við að hann haldi áfram að þróast á komandi misserum. Daníel Þór og Magnús Malik hafa þegar fengið sín fyrstu tækifæri með meistaraflokki Gróttu í vetur en Halldór Ingi á enn eftir að leika sinn fyrsta leik með aðalliðinu. Andri Sigfússon, þjálfari Gróttu, fagnar samningunum og segir þá mikilvægan þátt í uppbyggingu félagsins. „Við erum mjög ánægðir að vera búnir að semja við þessa ungu stráka. Þeir voru allir viðloðandi meistaraflokkinn á undirbúningstímabilinu og stóðu sig mjög vel. Það er því eðlileg þróun að þeir stígi næsta skref og verði partur af uppbyggingunni,“ sagði Andri. Grótta er með fullt hús stiga í Grill66-deildinni ásamt ÍR og gera má ráð fyrir harðri keppni á milli félagana um efsta sætið í deildinni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.