Ída Margrét Stefánsdóttir, leikmaður Gróttu, lék sinn fyrsta leik á tímabilinu þegar liðið tapaði fyrir Val í Olís-deild kvenna um síðustu helgi. Ída Margrét, sem var valin besti leikmaður og besti varnarmaður Grill66-deildarinnar á síðustu leiktíð, hefur glímt við bakmeiðsli og ekkert komið við sögu með Gróttu í vetur fyrr en nú. Hún kom inn á undir lok leiksins gegn Val. Ída var í lykilhlutverki í liði Gróttu í Grill66-deildinni á síðustu leiktíð er Grótta endaði í 2.sæti deildarinnar. Grótta tapaði sína í oddaleik í úrslitaeinvíginu í umspili um laust sæti í Olís-deildinni gegn Stjörnunni. En vegna fjölgunar í Olís-deildinni er Grótta komin aftur í deild þeirra bestu. Endurkoma hennar er kærkomin fyrir Gróttu sem er með fjögur stig að loknum sex umferðum í Olís-deildinni. Liðið fær ÍBV í heimsókn laugardaginn 31. október.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.