Búið er að spila þrjár umferðir í Evrópudeildinni og hafa Valsmenn sótt tvo sigra í keppninni til þessa. Evrópudeildin birti í dag lista yfir öflugustu liðin til þessa og sitja Valsmenn í 16. sæti listans. SG Flensburg Handewitt trónir á toppi listans en liðið er með fullt hús stiga eftir umferðirnar þrjár og +32 í markatölu. Athygli vekur að Limoges, sem er með FH í riðli, situr í fjórða sæti listans og RD LL Grosist Slovan sem er með Val í riðli er í 7. sæti listans. FH-ingar eru í 29. sæti listans eftir að hafa tapað öllum þremur leikjunum til þessa.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.