Filip Jicha, fyrrverandi þjálfari þýska stórliðsins THW Kiel, á í viðræðum við rúmenska handknattleikssambandið um að taka við karlalandsliði þjóðarinnar. Samningaviðræðurnar hafa hins vegar strandað á fjárhagslegum ágreiningi en Jicha er sagður fara fram á laun og hlunnindi sem nema um 20 þúsund evrum á mánuði, jafnvirði tæplega þriggja milljóna íslenskra króna. Rúmenar eru í kapphlaupi við tímann um að ráða nýjan landsliðsþjálfara áður en liðið hefur leik í undankeppni Evrópumótsins gegn Frakklandi þann 5. nóvember. Rúmenska landsliðið hefur verið án aðalþjálfara síðan í apríl þegar samningur George Buricea rann út. Bogdan Voina, forseti rúmenska handknattleikssambandsins, hefur undanfarna þrjá mánuði leitað að eftirmanni hans og er Jicha sagður efstur á óskalistanum. Samkvæmt rúmenska íþróttamiðlinum Gazeta Sporturilor hafa viðræður við Jicha staðið yfir um nokkurt skeið en fjárhagslegar kröfur Tékkans hafa reynst erfiðar fyrir sambandið. Jicha er sagður fara fram á launapakka sem nemur um 20 þúsund evrum á mánuði. Innifalið í þeirri upphæð eru meðal annars húsnæðiskostnaður upp á fjögur þúsund evrur á mánuði, lúxusbifreið og flugmiðar auk launa. Rúmenska handknattleikssambandið leitaði eftir fjárhagslegum stuðningi frá ólympíunefnd landsins til að fjármagna ráðninguna en þeirri beiðni var hafnað. Ástæðan er sögð sú að ólympíunefndin telji rúmenska karlalandsliðið ekki eiga raunhæfa möguleika á að tryggja sér þátttökurétt á Ólympíuleikunum árið 2028. Tíminn er farinn að vinna gegn rúmenska sambandinu en þann 26. október þarf að skila inn 35 manna leikmannalista til Handknattleikssambands Evrópu fyrir komandi landsliðsverkefni. Takist ekki að semja við Jicha hefur sambandið þegar skoðað aðra möguleika. Eliodor Voica hefur hafnað því að taka við landsliðinu og samkvæmt heimildum Gazeta Sporturilor er Sandu Iacob nú líklegasti kosturinn ef viðræðurnar við Jicha fara út um þúfur. Iacob er 49 ára gamall, fyrrverandi landsliðsmaður Rúmeníu, sem þjálfaði síðast CSM Sighișoara. Hann hefur einnig reynslu sem landsliðsþjálfari Georgíu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.