Jóan á meðal markaskorara í jafntefli gegn Austurríki
HSF

Jóan Rúnadóttir Johannsen, leikmaður KA/Þórs í Olís-deild kvenna, skoraði eitt mark fyrir færeyska landsliðið þegar liðið gerði 33-33 jafntefli gegn Austurríki í vináttulandsleik í gær. Leikurinn var liður í undirbúningi færeyska landsliðsins fyrir Evrópumótið sem fram fer í desember.

Færeyingar byrjuðu leikinn af krafti og voru með yfirhöndina fyrstu fimmtán mínúturnar. Austurríki náði hins vegar undirtökunum þegar leið á fyrri hálfleikinn og var þremur mörkum yfir í hálfleik, 18-15.

Færeyska liðið byrjaði síðari hálfleikinn vel en Austurríki náði aftur að auka forskot sitt og var komið fimm mörkum yfir, 30-25, þegar tíu mínútur voru eftir af leiknum.

Færeyingar neituðu hins vegar að gefast upp og breyttu um varnarskipulag á lokakaflanum. Sú breyting skilaði árangri og náði liðið að vinna upp fimm marka forskot Austurríkis á síðustu tíu mínútunum.

Maria Pálsdóttir Nólsoy fór fyrir færeyska liðinu á lokakaflanum og tryggði liðinu jafntefli með marki úr vítakasti undir lok leiksins.

Maria var jafnframt markahæst í liði Færeyja með átta mörk en Jana Mittún skoraði sjö og Pernille Brandenborg sex.

Jóan Rúnadóttir, sem leikur með KA/Þór hér á landi, komst einnig á blað með einu marki í leiknum.

Liðin mætast aftur í öðrum vináttulandsleik á morgun, laugardag, klukkan 16:00 að íslenskum tíma. Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Portal Play.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top