Stymmi Klippari mun í allan vetur spá í spilin og tippa á hvernig komandi umferð mun fara í Olís deildum karla og kvenna. Hér að neðan má sjá hvernig hann telur að 7.umferð fari í Olís deild kvenna. ÍR – Selfoss (Fimmtudagur 19:30) / Sigurvegari: ÍR ÍR búnar að tapa tveim leikjum í röð gegn toppliðum deildinnar eftir góða byrjun á tímabilinu. Selfoss komst loksins á sigurbraut í síðustu umferð aftur eftir góðan sigur á HK. ÍR mun hins vegar sýna styrk sinn í kvöld og vinna sinn fimmta leik á tímabilinu. Fram – Haukar (Fimmtudagur 20:00) / Sigurvegari: Haukar Fram hafa tapað tveim leikjum í röð gegn Val og ÍBV. Þær eru eflaust hundsvekktar með þessi töp þar sem þær sýndu ekki sitt rétta andlit. Haukarnir eru á toppi deildinnar með fullt hús og það mun ekki breytast í kvöld. Þær fara í Úlfarsárdalinn og munu halda uppteknum hætti og sigra Fram. Spurning hvort Jóhanna Margrét sé ennþá í revange mode? Stjarnan – Valur (Föstudagur 18:30) / Sigurvegari: Valur Hafdís Renötudóttir spilaði 2 landsleiki um síðustu helgi svo hún er að komast aftur inn á parketið sem er ekki góðar fréttir fyrir Stjörnustelpurnar. Valur mun mæta í Garðabæinn og sýna mátt sinn og meginn og vinna Stjörnuna þægilega. HK – KA/Þór (Föstudagur 19:00) / Sigurvegari: KA/Þór KA/Þór komst á blað í deildinni með góðum sigri á Stjörunni í síðasta leik og það mun hafa gert mikið fyrir liðið. HK tapaði fallbaráttuslag við Selfyssinga á sama tíma svo þetta er svakalegur botnslagur sem mun eiga sér stað á morgun í Kórnum. KA/Þór mun halda uppteknum hætti frá síðustu umferð og vinna HK í algjörum naglbít. Grótta – ÍBV (Laugardagur 14:00) / Sigurvegari: ÍBV ÍBV unnu iðnaðarsigur á Fram í síðasta leik fyrir landsleikjahlé í Eyjum meðan Grótta tapaði gegn Val. ÍBV mun vilja hefna fyrir ófarirnar í bikarkeppninni í fyrra þar sem Grótta sló þær óvænt úr keppni. Gæðamunurinn á þessum leiðum er ennþá talsverður og ÍBV mun vinna nokkuð þægilegan sigur á Nesinu á laugardaginn. 1.umferð (4 réttir)
2.umferð (4 réttir)
3. umferð (4 réttir)
4.umferð (5 réttir)
5.umferð (3 réttir)
6.umferðir (4 réttir)

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.