Nýjar upplýsingar hafa komið fram um samningsstöðu Hauks Þrastarsonar hjá þýska úrvalsdeildarfélaginu Rhein-Neckar Löwen en íslenski landsliðsmaðurinn hefur verið orðaður við brottför frá félaginu næsta sumar. Samkvæmt umfjöllun þýska blaðsins Bild, gæti verið sérstakt ákvæði í samningi Hauks sem tengist þjálfaraskiptum hjá félaginu. Haukur orðaður við brottför frá Löwen Maik Machulla var látinn taka pokann sinn sem þjálfari Rhein-Neckar Löwen fyrr í október eftir erfiða byrjun liðsins á tímabilinu. Machulla hafði haft mikil áhrif á framfarir Hauks hjá félaginu og því hafa þjálfaraskiptin vakið spurningar um framtíð íslenska landsliðsmannsins. Haukur framlengdi samning sinn við Rhein-Neckar Löwen í maí síðastliðnum til sumarsins 2028 og er því enn samningsbundinn félaginu næstu tvö tímabilin. Ekki hefur verið staðfest að umrætt ákvæði sé í samningi Hauks eða hvaða áhrif það gæti haft á mögulega brottför hans. Enn sem komið er liggur heldur ekkert fyrir um að Haukur hafi óskað eftir því að yfirgefa félagið. Á sama tíma heldur erfiðleikaskeið Rhein-Neckar Löwen áfram. Liðið tapaði fyrir Hamburg á útivelli á föstudagskvöldið, 28-23, og var það fjórða tap félagsins í röð í þýsku úrvalsdeildinni. Haukur skoraði þrjú mörk og gaf fimm stoðsendingar í leiknum en Rhein-Neckar Löwen situr í 13. sæti deildarinnar með sjö stig eftir fyrstu tíu umferðirnar. Þýski landsliðsmarkvörðurinn David Späth var afar ósáttur með frammistöðu liðsins eftir tapið og sagði í samtali við Dyn að leikmenn yrðu að gera mun betur. Uwe Gensheimer hefur á ný tekið við starfi íþróttastjóra Rhein-Neckar Löwen og bíður hans erfitt verkefni við að koma félaginu aftur á réttan kjöl. Mikil óvissa ríkir um framtíð nokkurra leikmanna félagsins. Späth hefur verið orðaður við Kiel og Aron Seesing við Magdeburg, auk þess sem Haukur og sænski landsliðsmaðurinn Edwin Aspenbäck hafa verið nefndir sem mögulegir brottfararfarþegar. Næstu mánuðir gætu því reynst afar viðburðaríkir hjá Rhein-Neckar Löwen, bæði innan vallar og utan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.