Valur og HK mættust í áttundu umferð Olís deildar kvenna í leik sem var að ljúka. Valur var yfir með einu marki eftir hörku spennandi fyrri hálfleik en staðan í hálfleik var 16-15 og allt í járnum. Valur kom vel gírað inn í síðari hálfleikinn og landaði að lokum fimm marka sigri 27-22. Valur er í þriðja sæti deildarinnar eftir sigurinn með tólf stig en HK situr í næst síðasta sæti deildarinnar með tvö stig. Ásdís Þóra Ágústsdóttir var atkvæðamest í liði heimakvenna en hún skoraði sjö mörk. Guðrún Hekla Traustasdóttir og Katla María Magnúsdóttir skoruðu báðar fimm mörk. Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir var atkvæðamest í liði HK með sex mörk. Hekla Sóley Halldórsdóttir skoraði fimm mörk. Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.