Fram batt enda á taphrinuna með öruggum sigri á ÍR
Eyjólfur Garðarsson

Fram batt enda á þriggja leikja taphrinu sína í Olís-deild kvenna í kvöld þegar liðið vann öruggan sjö marka sigur á ÍR, 29-22, í Skógarseli. Framarar höfðu tapað síðustu þremur leikjum sínum í deildinni en náðu að snúa blaðinu við með góðri frammistöðu.

Fram byrjaði leikinn af krafti og komst í 4-2 eftir tæpar átta mínútur. Gestirnir héldu áfram að hafa frumkvæðið og juku forskotið í 9-5 þegar tæpur stundarfjórðungur var liðinn.

ÍR náði að minnka muninn í 9-8 en þá tóku Framarar aftur við sér og skoruðu þrjú mörk í röð. Staðan var 12-8 áður en gestirnir bættu enn við forskotið og leiddu með sex mörkum í hálfleik, 16-10.

Framarar héldu áfram að stjórna leiknum í síðari hálfleik. ÍR náði að minnka muninn í 18-12 en Fram svaraði og komst í 22-16 þegar rúmar 46 mínútur voru liðnar.

Gestirnir héldu heimakonum í hæfilegri fjarlægð og juku forskotið í 25-17 þegar rúmar 50 mínútur voru liðnar. Fram komst mest níu mörkum yfir, 28-19, áður en ÍR lagaði stöðuna á lokamínútunum. Lokatölur urðu 29-22 fyrir Fram.

Elinborg Katla Þorbjörnsdóttir var markahæst hjá Fram með átta mörk. Katrín Anna Ásmundsdóttir, Kristín Steinþórsdóttir og Lena Margrét Valdimarsdóttir skoruðu fjögur mörk hver. Ethel Gyða Bjarnasen varði 13 skot í marki Fram.

Hjá ÍR var Sara Dögg Hjaltadóttir markahæst með sex mörk, Karen Tinna Demian skoraði fimm og Anna María Aðalsteinsdóttir þrjú. Sif Hallgrímsdóttir varði ellefu skot og Elísa Helga Sigurðardóttir tvö.

Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top