Arnar Freyr Arnarsson, landsliðsmaður og leikmaður Flensburg segir framtíð sína óljósa fyrir næsta tímabil. Samningur hans rennur þá út en mikil umræða hefur verið um mögulega endurkomu Johannes Golla til félagsins frá MT Melsungen. Arnar gekk til liðs við Flensburg síðasta sumar og hefur fengið töluverðan spilatíma, einkum í varnarleiknum. Hann segist ánægður með fyrstu mánuðina en framtíðin sé enn óljós. „Það er bara verið að skoða hana og núna einbeiti ég mér að Flensburg og að standa mig vel þar. Annaðhvort heldur maður áfram þar eða fer eitthvað annað. Það verður bara að koma í ljós,“ sagði Arnar í samtali við Handkastið. Golla hefur verið mikið í umræðunni vegna mögulegrar endurkomu til Flensburg en Arnar segist ekki hafa áhyggjur af því hvaða áhrif það gæti haft á hans eigin stöðu. „Það er náttúrulega rosalega mikil umræða um þetta en maður veit ekkert hvað gerist. Ég er ekkert að stressa mig á þessu. Ef hann kemur þá kemur hann og þá finnur maður eitthvað annað. Það er kominn nóvember en umboðsmaðurinn er á fullu að reyna að finna eitthvað, finna lið eða fá lausn á þessu með Flensburg. Ég er bara sallarólegur.“ Arnar segist helst vilja halda áfram í þýsku úrvalsdeildinni og vonast til að geta verið áfram hjá Flensburg. „Ég myndi vilja vera áfram í Bundesligunni en svo veit maður ekkert hvað gerist. Vonandi verður þetta eitthvað í Bundesligunni eða hjá einhverju stóru liði, vonandi Flensburg.“ Flensburg hefur verið áberandi á félagaskiptamarkaðnum og Arnar telur að félagið sé að breyta áherslum sínum með því að sækja yngri og hraðari leikmenn. „Þeir eru að taka dálítið nýja stefnu, finnst mér. Þeir eru að fá unga leikmenn og hraðari leikmenn, kannski eins og handboltinn er í dag, svipað og Magdeburg er að gera.“ Aðspurður hvort hann vildi sjálfur taka þátt í þeirri uppbyggingu svaraði Arnar: „Ég væri til í það, já.“

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.