Jensen mætir verðandi lærisveinum – íslensku stelpurnar fá stórveldið Györ í heimsókn

Það verður enginn skortur á stórleikjum þegar Meistaradeild kvenna fer aftur af stað um helgina eftir þriggja vikna hlé. Öll augu beinast að Danmörku þar sem Jesper Jensen, þjálfari FTC, mætir verðandi lærisveinum sínum hjá Team Esbjerg í uppgjöri tveggja af sterkustu liðum keppninnar. Ungverska liðið hefur farið taplaust í gegnum fyrstu sex umferðirnar, en nú mæta þær Henny Reistad og félögum sem ætla sér að stöðva sigurgöngu FTC.

Í Þýskalandi bíður íslensku landsliðskvennanna Díönu Daggar Magnúsdóttur og Elínar Rósu Magnúsdóttur sannkallað risaverkefni þegar sjöfaldir Evrópumeistarar Györ mæta í heimsókn til Blomberg-Lippe í leik umferðarinnar. Þýska liðið hefur enn ekki náð í stig á sínu fyrsta tímabili í Meistaradeildinni og fær nú eitt sigursælasta félagslið Evrópu í heimsókn. Takist Blomberg að koma á óvart yrðu það ein óvæntustu úrslit tímabilsins.

Og stórleikjunum er hvergi nærri lokið. Ríkjandi Evrópumeistarar Metz taka á móti Odense í uppgjöri þar sem hefndarhugur gæti verið í herbúðum Frakkanna eftir tapið í undanúrslitum árið 2025. Metz hefur ekki tapað í fimmtán leikjum í röð í Meistaradeildinni og ætlar sér að halda þeirri mögnuðu hrinu áfram. Þá mætast Brest og CSM Bucuresti í viðureign tveggja liða sem þurfa sárlega að komast aftur á sigurbraut.

Alls verða átta leikir á dagskrá laugardaginn 7. og sunnudaginn 8. nóvember. Riðlakeppnin er að verða hálfnuð, baráttan um efstu sætin harðnar og liðin í neðri hlutanum hafa sífellt minna svigrúm til mistaka. Það er því nóg í húfi þegar bestu félagslið Evrópu snúa aftur á völlinn.

A-riðill

Krim – Sola | Laugardagur 7. nóvember kl. 15:00
Bæði lið mæta til leiks með aukið sjálfstraust eftir að hafa loksins náð sínum fyrstu sigrum á tímabilinu í sjöttu umferð.

Krim vann dramatískan 24:23 sigur á Buducnost og batt þar með enda á tíu leikja taphrinu sína í Meistaradeildinni. Sola sá hins vegar um ein óvæntustu úrslit tímabilsins þegar norska liðið vann stórkostlegan 30:22 útisigur á CSM Bucuresti. Sigrarnir komu á kærkomnum tíma fyrir bæði félög, sem höfðu átt erfitt uppdráttar í upphafi keppninnar.

Sóknarleikur Krim hefur verið öflugri en hjá Sola það sem af er tímabili. Slóvenska liðið hefur skorað 28,2 mörk að meðaltali í leik á móti 25,6 mörkum Sola. Varnarleikurinn hefur hins vegar reynst Krim dýrkeyptur og liðið hefur fengið á sig 33,6 mörk að meðaltali, mest allra liða í keppninni. Sola hefur verið mun þéttara varnarlega og fengið á sig 27 mörk að meðaltali.

Frida Brandbu Andersen hefur skorað 33 mörk fyrir Sola og Nina Zulic er skammt undan með 32 mörk fyrir Krim.

Liðin hafa mæst tvisvar áður í Meistaradeildinni. Krim vann fyrri viðureignina 35:28 en þeirri síðari lauk með 22:22 jafntefli í janúar síðastliðnum.

Brest – CSM Bucuresti | Laugardagur 7. nóvember kl. 17:00
Brest og CSM Bucuresti mætast í Frakklandi í viðureign tveggja liða sem hafa ekki náð þeim stöðugleika sem væntingar stóðu til.

Brest byrjaði tímabilið frábærlega undir stjórn nýs þjálfara, Tomas Hlavatý, og vann fyrstu fjóra leiki sína. Síðan hefur hins vegar hallað undan fæti og franska liðið tapað tveimur leikjum í röð, fyrst gegn FTC og síðan 26:35 gegn Team Esbjerg. CSM hefur sömuleiðis átt misjöfnu gengi að fagna. Rúmenska liðið hefur unnið þrjá leiki og tapað þremur, en síðasti leikur þess vakti sérstaka athygli þegar Sola vann átta marka sigur í Búkarest.

Leikurinn verður jafnframt endurtekning á bronsleik Meistaradeildarinnar frá síðasta vori. Þá hafði CSM betur, 32:26, og tryggði sér þriðja sætið á úrslitahelginni. Brest hefur þó jafnan verið sterkt á heimavelli gegn rúmenska liðinu. CSM hefur aðeins unnið eina af fjórum heimsóknum sínum til Brest, árið 2022.

Tamara Horacek hefur verið atkvæðamest hjá Brest með 35 mörk í keppninni. Hjá CSM hefur Valeriia Maslova skorað 33 mörk og Emma Friis 31.

Hlavatý segir leikmenn Brest staðráðna í að svara fyrir síðustu úrslit og hefna tapsins í bronsleiknum síðasta vor. Bojana Popović, þjálfari CSM, býst hins vegar við erfiðum útileik og bendir á að stemningin í Brest sé jafnan mikil.

Bæði lið þurfa á sigri að halda til að halda sér í baráttunni um efstu sæti riðilsins.

Team Esbjerg – FTC | Sunnudagur 8. nóvember kl. 13:00
Einn stærsti leikur umferðarinnar fer fram í Danmörku þegar Team Esbjerg tekur á móti FTC. Ungverska liðið hefur verið óstöðvandi í upphafi tímabilsins og unnið alla sex leiki sína, en Esbjerg er skammt undan með fimm sigra og eitt tap.

Leikurinn hefur þó sérstaka þýðingu fyrir Jesper Jensen, þjálfara FTC, sem mun taka við Esbjerg að loknu yfirstandandi tímabili. Jensen snýr því aftur á kunnuglegar slóðir og mætir um leið liðinu sem hann mun stýra næsta sumar. Jensen á langa sögu hjá Esbjerg og verður áhugavert að sjá hvernig honum tekst að undirbúa FTC fyrir viðureignina gegn verðandi félagi sínu.

FTC hefur leikið frábærlega í Meistaradeildinni og vann síðast 39:25 stórsigur á Borussia Dortmund. Esbjerg hefur sömuleiðis verið sannfærandi og vann Brest 35:26 í síðustu umferð þar sem Henny Reistad skoraði tíu mörk.

Reistad er markahæst allra leikmanna í Meistaradeildinni með 52 mörk eftir sex leiki. Hún er á sínu síðasta tímabili hjá Esbjerg áður en hún gengur til liðs við Brest næsta sumar. Hjá FTC hefur Petra Simon verið atkvæðamest með 37 mörk og verður hún einn lykilmanna ungverska liðsins.

Þrátt fyrir fullkomna byrjun FTC hefur Esbjerg haft gott tak á ungverska liðinu á heimavelli. FTC hefur aðeins unnið eina af fimm heimsóknum sínum til Esbjerg, árið 2020, þegar liðið hafði betur 24:21.

Það er því mikið undir. Esbjerg getur orðið fyrsta liðið til að leggja FTC að velli á tímabilinu, á meðan gestirnir geta styrkt stöðu sína á toppi A-riðils enn frekar.

Borussia Dortmund – Buducnost | Sunnudagur 8. nóvember kl. 15:00
Borussia Dortmund freistar þess að komast aftur á sigurbraut þegar liðið tekur á móti Buducnost frá Svartfjallalandi.

Þýska liðið hafði unnið þrjá leiki í röð áður en það mætti FTC í síðustu umferð. Þar reyndist ungverska stórliðið hins vegar of sterkt og Dortmund tapaði 25:39. Buducnost hefur átt enn erfiðara uppdráttar og aðeins unnið einn af fyrstu sex leikjum sínum. Sá sigur kom gegn Sola í fimmtu umferð.

Liðin hafa mæst sex sinnum áður í Evrópukeppnum og unnið þrjá leiki hvort. Síðasti sigur Buducnost gegn Dortmund kom árið 2022 þegar liðið vann 34:30 á útivelli.

Alina Grijseels hefur skorað 29 mörk fyrir Dortmund og Merel Freriks 25. Hjá Buducnost hefur Đurđina Jauković verið markahæst með 32 mörk og Jovana Skrobić fylgir með 30.

Dortmund er með sex stig eftir sex leiki og getur með sigri styrkt stöðu sína í baráttunni um sæti í útsláttarkeppninni. Buducnost er hins vegar aðeins með tvö stig og þarf nauðsynlega á sigri að halda til að halda í við liðin fyrir ofan sig.

B-riðill

Nykøbing – Storhamar | Laugardagur 7. nóvember kl. 17:00
Norræn viðureign verður í Danmörku þegar Nykøbing tekur á móti norska liðinu Storhamar.

Bæði lið koma til leiks eftir sjö marka töp í síðustu umferð. Nykøbing tapaði 26:33 fyrir Podravka í Króatíu og Storhamar laut í lægra haldi fyrir Gloria Bistrita með sömu markatölu.

Storhamar er í fjórða sæti B-riðils með sex stig eftir sex leiki, en Nykøbing situr í sjöunda sæti með þrjú stig.

Clara Lerby hefur verið einn allra besti markaskorari keppninnar. Danski hornamaðurinn hefur skorað 51 mark í fyrstu sex leikjunum og er næstmarkahæst í Meistaradeildinni, aðeins einu marki á eftir Henny Reistad.

Storhamar hefur hins vegar getað treyst á öfluga markvörslu Eli Marie Raasok. Hún hefur varið 74 skot í fyrstu sex leikjunum og er með tæplega 35 prósenta markvörslu.

Liðin hafa mæst fjórum sinnum áður í Evrópukeppnum. Storhamar hefur unnið þrjár viðureignir en einum leik lauk með jafntefli.

Síðasti leikur liðanna, í janúar 2025, endaði einmitt 22:22.

Blomberg-Lippe – Györ | Laugardagur 7. nóvember kl. 17:00 – Leikur umferðarinnar
Íslensku landsliðskonurnar Díana Dögg Magnúsdóttir og Elín Rósa Magnúsdóttir fá eitt stærsta verkefni ferilsins þegar Blomberg-Lippe tekur á móti sjöföldum Evrópumeisturum Györ í leik umferðarinnar.

Þýska liðið er að leika sitt fyrsta tímabil í Meistaradeildinni og hefur enn ekki náð að vinna sér inn stig. Blomberg hefur tapað öllum sex leikjunum og síðustu tvær umferðir hafa reynst liðinu sérstaklega erfiðar.

Fyrst tapaði Blomberg 18:35 fyrir Odense á heimavelli og síðan 22:32 gegn ríkjandi Evrópumeisturum Metz í Frakklandi.

Györ er hins vegar í öðru sæti B-riðils með ellefu stig, jafnmörg og Metz, en franska liðið er með betri markatölu. Ungverska liðið hefur unnið fimm leiki og gert eitt jafntefli. Í síðustu umferð vann Györ dramatískan 32:31 útisigur á Odense.

Munurinn á liðunum hefur verið mikill í sóknarleiknum. Györ hefur skorað 193 mörk í fyrstu sex leikjunum og er með næstmarkahæstu sókn keppninnar ásamt FTC. Blomberg hefur hins vegar aðeins skorað 143 mörk og er með næstfæstu mörkin í keppninni.

Tjaša Stanko hefur verið markahæst hjá Györ með 36 mörk en Nieke Kühne hefur skorað 34 fyrir Blomberg.

Díana Dögg og Elín Rósa hafa báðar komið við sögu í Meistaradeildinni á tímabilinu. Í síðasta leik gegn Metz skoraði Díana tvö mörk og átti fimm stoðsendingar, flestar leikmanna Blomberg. Elín Rósa komst ekki á blað í markaskorun en átti tvær stoðsendingar og stal tveimur boltum.

Þrátt fyrir erfiða byrjun hefur Blomberg sýnt á köflum að liðið getur staðið í sterkum andstæðingum. Vandamálið hefur hins vegar verið að halda sama leikstigi í sextíu mínútur.

Þetta verður fyrsti Evrópuleikur félaganna innbyrðis.

Fyrir Blomberg verður leikurinn fyrst og fremst tækifæri til að mæla sig við eitt besta félagslið heims. Györ ætlar sér hins vegar að halda áfram að berjast við Metz um toppsæti riðilsins.

Gloria Bistrita – Podravka | Sunnudagur 8. nóvember kl. 15:00
Gloria Bistrita tekur á móti Podravka í leik þar sem bæði lið hafa sýnt batamerki eftir misjafna byrjun á tímabilinu.

Rúmenska liðið situr í þriðja sæti B-riðils með átta stig eftir sex leiki og hefur verið sérstaklega sterkt á heimavelli. Bistrita hefur unnið báða heimaleiki sína í keppninni til þessa, gegn Odense og Storhamar, og freistar þess nú að bæta þeim þriðja við.

Podravka er í sjötta sæti með fjögur stig eftir tvo sigra og fjögur töp. Króatíska liðið vann góðan 33:26 sigur á Nykøbing í síðustu umferð og kemur því til leiks með aukið sjálfstraust.

Johanna Reichert hefur verið atkvæðamest hjá Gloria Bistrita með 39 mörk og er þriðja markahæst í keppninni. Katarina Pandža hefur skorað 37 mörk fyrir Podravka og er í fjórða sæti markalistans ásamt öðrum leikmönnum.

Liðin mættust tvisvar í riðlakeppninni á tímabilinu 2024/25 og hafði Podravka betur í bæði skiptin, 29:25 og 26:25.

Sigur gæti komið Podravka nær liðunum fyrir ofan sig, en Bistrita getur með tveimur stigum styrkt stöðu sína í þriðja sæti riðilsins.

Metz – Odense | Sunnudagur 8. nóvember kl. 15:00
Ríkjandi Evrópumeistarar Metz taka á móti Odense í einum stærsta leik helgarinnar.

Franska liðið hefur verið nánast óstöðvandi í Meistaradeildinni og er á toppi B-riðils með ellefu stig eftir sex leiki. Metz hefur unnið fimm leiki og gert eitt jafntefli. Liðið hefur jafnframt ekki tapað í síðustu fimmtán leikjum sínum í Meistaradeildinni, þar sem það hefur unnið þrettán leiki og gert tvö jafntefli.

Metz hefur einnig verið með öflugasta sóknarleik keppninnar. Franska liðið hefur skorað 209 mörk í fyrstu sex leikjunum og aðeins fengið á sig 154 mörk, næstfæst allra liða. Odense hefur hins vegar ekki náð sama stöðugleika og á síðasta tímabili. Danska liðið situr í fimmta sæti B-riðils með fimm stig eftir tvo sigra, eitt jafntefli og þrjú töp.

Leikurinn verður þó sérstakur vegna sögu liðanna.

Metz og Odense mættust í undanúrslitum Meistaradeildarinnar vorið 2025. Þá hafði Odense betur, 31:29, eftir framlengingu og tryggði sér sæti í úrslitaleiknum. Franska liðið hefur því harma að hefna.

Það verður einnig sérstök stund fyrir sænska markvörðinn Johönnu Bundsen, sem gekk til liðs við Odense frá Metz fyrir tímabilið. Xenia Smits fór sömu leið en verður ekki með danska liðinu vegna meðgöngu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top