Áttundi sigur Aftureldingar í röð

Í dag mættust Afturelding og HK 2 í Grill 66 deild kvenna en leikið var í Mosfellsbæ.

Fyrri hálfleikur var gríðarlega jafn og spennandi og var nánast jafnt á öllum tölum lengi vel allan fyrri hálfleikinn. Jafnræðið í leiknum kom kannski einhverjum á óvart enda liðin á mjög ólíkum stað í deildinni. Hálfleikstölur voru 13-13.

Aftureldingar stelpur byrjuðu seinni hálfleikinn gríðarlega vel og komust 4 mörkum yfir eftir rúmlega 10 mínútna leik. HK stelpur virkuðu slegnar eftir þessa slöku byrjun og Aftureldingar stelpur voru komnar 8 mörkum yfir eftir rúmt korter í seinni hálfleik og sigurinn nánast í höfn.

HK náði þó aðeins að klóra í bakkann undir lokin og náði að minnka muninn í 3 mörk áður en lokaflautan gall. Lokatölur 26-23. Afturelding eru því áfram taplausar á toppnum og stefna hraðbyri í Olís deildina.

Hjá Aftureldingu var Katrín Helga Davíðsdóttir með 10 mörk. Bertine Hansen Elvegaard nýr leikmaður félagsins varði 11 skot.

Hjá HK 2 var Auður Guðmundsdóttir markahæst með 7 mörk. Freydís Ragna Kristjánsdóttir varði 10 skot.

Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top