Þýski landsliðsmaðurinn Juri Knorr hefur tjáð sig um ákvörðun sína að yfirgefa danska stórliðið Álaborg og ganga til liðs við franska stórliðið Paris Saint-Germain næsta sumar. Knorr sem er 26 ára gamall gekk til liðs við Álaborg sumarið 2025 frá Rhein-Neckar Löwen og skrifaði þá undir þriggja ára samning. Í september síðastliðnum var hins vegar tilkynnt að hann myndi yfirgefa danska félagið eftir aðeins tvö tímabil og ganga til liðs við PSG sumarið 2027. Í viðtali við Sport Bild viðurkennir Knorr að fyrsta árið í Danmörku hafi reynst honum erfitt, sérstaklega utan vallar. „Ég vissi að það yrði erfitt að flytja til útlanda. Fyrsta árið var ekki auðvelt félagslega. Maður sat í búningsklefanum og skildi ekki orð. Þar að auki var ég eini leikmaðurinn sem var ekki frá Skandinavíu,“ sagði Knorr. Hann segist þó alls ekki sjá eftir því að hafa gengið til liðs við Álaborg. „Ég sé alls ekki eftir þessari ákvörðun, þótt ég skilji vel að það geti litið öðruvísi út fyrir fólk utan frá.“ Knorr segir að dvölin í Danmörku hafi kennt honum mikið, bæði innan vallar og utan. Sérstaklega nefnir hann taktíska þætti leiksins og skandinavískan handbolta. Þegar hann var spurður hvers vegna hann hefði ákveðið að yfirgefa Álaborg svo skömmu eftir komuna sagði hann að tækifærið hjá PSG hefði einfaldlega verið of gott til að hafna. „Paris er algjört stórlið á heimsvísu og ég vissi ekki hvort ég myndi nokkurn tímann fá þetta tækifæri aftur. Þess vegna ákvað ég að slá til.“ Knorr segir jafnframt að samskiptin við forráðamenn Álaborgar hafi verið góð og að félögin hafi fundið lausn sem allir aðilar gátu sætt sig við. Hjá PSG mun Knorr hitta fyrir þýska landsliðsfélaga sinn Renars Uscins, sem gengur einnig til liðs við franska félagið næsta sumar frá Hannover-Burgdorf. Knorr segist spenntur fyrir því að takast á við nýja áskorun ásamt Uscins og að þeir hafi verið í meiri samskiptum eftir að félagaskipti þeirra voru staðfest. Knorr gerði samning við PSG til sumarsins 2030.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.