Fékk gæsahúð í fullri Laugardalshöll
Sævar Jónasson

Jón Bjarni Ólafsson, línumaður FH, lét til sín taka í 22 marka sigri Íslands á Úkraínu á miðvikudag. Hann skoraði sitt fyrsta landsliðsmark í fyrsta landsleik sínum í Laugardalshöll, þar sem uppselt var.

Jón Bjarni hafði áður leikið tvo vináttulandsleiki gegn Egyptalandi í Kaíró fyrr á árinu. Að spila fyrir framan fulla Laugardalshöll var önnur upplifun.

„Þetta er ótrúleg tilfinning, sérstaklega fyrir framan fulla höllina. Móttökurnar voru geggjaðar,“ sagði Jón Bjarni í samtali við Handkastið. „Maður fékk alveg gæsahúð.“

Rætt var um frammistöðu og fögnuð Jóns Bjarna í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins.

Jón Bjarni fagnaði mörkunum innilega og sagði fögnuðinn hafa komið af sjálfu sér. Hann lítur á tækifærið með landsliðinu sem afrakstur vinnunnar sem hann hefur lagt á sig undanfarin ár. Nú nýtir hann tímann með reyndari leikmönnum liðsins til að læra af þeim.

„Það er geðveikt að fá að vera með þessum gæjum og ég get lært helling hérna.“

Elliði Snær Viðarsson fær frí frá leiknum gegn Eistlandi á sunnudag og því gæti hlutverk Jóns Bjarna á línunni orðið stærra. Ýmir Örn Gíslason þurfti að draga sig úr landsliðsverkefninu vegna meiðsla. Hann sagði að Snorri Steinn Guðjónsson hefði enn ekki rætt það sérstaklega við sig.

„Hlutverkið verður örugglega stærra. Ég vona að ég fái fleiri mínútur. Ég held að það fari líka svolítið eftir því hvernig leikurinn þróast.“

Aðspurður hvort hann væri búinn að taka sér frí frá vinnu í janúar vegna mögulegrar þátttöku á HM í Þýskalandi svaraði Jón Bjarni:

„Nei, ég er ekki búinn að því en ég er búinn að láta vita að það gæti gerst.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top