Hin nítján ára gamla Farrelle Njinkeu, leikmaður þýska úrvalsdeildarfélagsins HSG Blomberg-Lippe hefur upplifað ævintýralega tólf mánuði á handboltavellinum þar sem hún hefur náð hverjum stóra áfanganum á fætur öðrum. Farrelle Njinkeu er liðsfélagi Díönu Dögg Magnúsdóttur og Elínar Rósu Magnúsdóttur hjá þýska liðinu. Njinkeu hefur á síðustu tólf mánuðum leikið sína fyrstu leiki í þýsku Bundesligunni, Meistaradeild Evrópu og með þýska A-landsliðinu. Þá hefur hún einnig orðið þýskur meistari og heimsmeistari með U20 ára landsliði Þýskalands. Þrátt fyrir ungan aldur er Njinkeu nú orðin hluti af þýska A-landsliðinu sem undirbýr sig fyrir Evrópumót kvenna í desember. Njinkeu ræddi við Handknattleikssamband Evrópu (EHF) fyrir leik Blomberg-Lippe gegn ungverska stórliðinu Györ í Meistaradeild Evrópu í dag. Hún segir reynsluna í Meistaradeildinni hafa kennt sér mikið og sýnt hversu mikill munur sé á því að spila í þýsku úrvalsdeildinni og gegn bestu félagsliðum Evrópu. „Þegar maður mætir bestu liðunum sér maður fljótt hvað maður þarf að bæta, bæði í sókn og vörn. Stigið er gríðarlega hátt og maður þarf að leggja meira af mörkum til að ná árangri,“ sagði Njinkeu í samtali við EHF. Blomberg-Lippe hefur átt erfitt uppdráttar í Meistaradeildinni á tímabilinu og tapað öllum sex leikjum sínum til þessa. Njinkeu segir að liðið þurfi að bæta stöðugleikann og fækka þeim köflum þar sem frammistaðan dettur niður. „Fyrsta markmiðið er að ná okkar fyrsta stigi. Síðan sjáum við hvernig hinum liðunum gengur og hvort við eigum möguleika á að komast áfram eftir riðlakeppnina.“ Njinkeu segist jafnframt hafa tekið stór skref í andlegum undirbúningi og sjálfstrausti undanfarna mánuði. „Ég er orðin miklu öruggari með sjálfa mig. Andlega hef ég tekið stórt skref fram á við. Ég mun halda áfram að vinna í veikleikum mínum og svo sjáum við hvert þetta ferðalag leiðir mig.“ Leikur Blomberg-Lippe og Györ fer fram í dag klukkan 17:00.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.