Spánverjinn Carlos Martin Santos, fyrrverandi þjálfari Harðar og Selfoss hér á landi var meðal þeirra fjölmörgu landsliðsþjálfara sem stýrðu sínum fyrstu keppnisleikjum með nýjum landsliðum þegar undankeppni Evrópumóts karla 2028 hófst í vikunni. Carlos Martin tók nýverið við landsliði Litháens og fékk heldur betur krefjandi verkefni í frumraun sinni þegar hann mætti Króatíu undir stjórn Dags Sigurðssonar. Króatar reyndust mun sterkari og unnu átján marka sigur, 46–28, í Split á miðvikudagskvöldið. Króatar settu jafnframt nýtt markamet hjá landsliðinu í undankeppni EM en liðið hafði aldrei áður skorað fleiri en 40 mörk í einum leik í undankeppninni. Santos tók við litháíska landsliðinu í lok október en hann er íslenskum handboltaáhugamönnum að góðu kunnur eftir störf sín hér á landi undanfarin ár. Spánverjinn hefur meðal annars stýrt bæði Herði frá Ísafirði og Selfossi og komið báðum félögum upp í efstu deild. Hann starfar nú í Svíþjóð þar sem hann þjálfar HK Aranäs samhliða starfi sínu með litháíska landsliðið. Miklar breytingar hafa orðið á þjálfarastöðum nokkurra evrópskra landsliða undanfarna mánuði og voru fjölmargir nýir þjálfarar í eldlínunni þegar undankeppni EM 2028 hófst. Svíinn Magnus Andersson fór vel af stað með norska landsliðið þegar Norðmenn unnu sautján marka sigur á Georgíu, 40–23, á fimmtudagskvöldið. Andersson tók við norska landsliðinu á árinu og er ætlað að leiða liðið inn í nýjan kafla eftir breytingar á þjálfarateyminu. Hollendingar eru sömuleiðis komnir með nýjan landsliðsþjálfara en Mark Bult tók við liðinu af Staffan Olsson í haust. Bult hóf undankeppnina með níu marka sigri gegn Finnlandi, 33–24. Í Ungverjalandi hóf László Sótonyi feril sinn sem landsliðsþjálfari með sannfærandi ellefu marka sigri gegn Svartfjallalandi, 32–21. Á hinum þjálfarabekknum var Zoran Roganović, sem sneri aftur til starfa sem landsliðsþjálfari Svartfjallalands í september. Roganović hafði áður stýrt Svartfellingum á stórmótum en endurkoman byrjaði því ekki með þeim hætti sem hann hafði vonast eftir. Í Slóvakíu hafa Luboš Hudák og Jan Filip tekið við stjórn landsliðsins en þeir þurftu að sætta sig við tveggja marka tap gegn Ítölum, 34–32, í fyrsta leik undankeppninnar. Talant Dujshebaev hóf einnig nýjan kafla á þjálfaraferlinum þegar hann stýrði franska landsliðinu í sínum fyrsta keppnisleik á fimmtudagskvöldið. Frakkar unnu sjö marka sigur gegn Rúmeníu, 34–27, en þurftu að hafa töluvert fyrir sigrinum. Rúmenar héldu lengi í við franska liðið áður en heimamenn náðu að slíta sig frá þeim undir lokin. Dujshebaev tók við franska landsliðinu af Guillaume Gille og er ætlað að leiða eina sigursælustu handboltaþjóð heims inn í nýtt tímabil.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.